Um mig
5. október 2009 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÞann 23. október árið 1983 gerðist sá merki atburður að lítill pjakkur ákvað að tímabært væri að kanna heiminn. Var þessi pjakkur frekar árrisull því hann var mættur klukkan 5 um morguninn. Foreldrarnir voru alsælir með pjakkinn og svo stoltur var faðirinn að hann ákvað að gefa honum nafnið sitt.
Pjakkurinn óx úr grasi í góðu atlæti hjá fjölskyldu sinni og ættingjum, lærði að lesa og skrifa. Þegar pjakkurinn var orðinn 16 ára gamall þá þótti honum tímabært að fara og skoða umheiminn og flutti því alla leið til Akureyrar þar sem hann fór í skóla. Eignaðist pjakkurinn þar marga vini og var mjög duglegur að leika sér þegar hann átti að vera að læra. Eftir að hafa dvalið í rúm 3 ár á Akureyri vildi pjakkurinn skoða fleira og hélt á vit ævintýranna í höfuðborginni. Þar gerðist hann gagnlegur og vann hin ýmsu störf. Eftir vetursetu í borginni ákvað pjakkurinn svo að hann væri búinn að fá nóg og hélt aftur heim í foreldrahús í sveitinni þar sem hann lærði af bók og útskrifaðist með hvítan koll. Í haust snéri pjakkurinn aftur á eyrina við eyjafjörð og les lög undir glym Íslandsklukkunnar. Hvað gerist svo?
Störf
- Blaðberi á Húsavík 1998-1999
- Garðsláttumaður á Húsavík 1999
- Þjónn og næturvörður á Fosshótel Laugum 2000-2001
- Fiskverkamaður í Laugafiski 2002
- Starfsmaður í pökkun og rannsóknarstofu Kísiliðjunnar við Mývatn 2002-2003
- Framkvæmdastjóri Söngkeppni Framhaldsskólanema 2003
- Dagskrárgerð fyrir Aksjón á Akureyri 2003
- Dagskrárgerð fyrir Popptíví í Reykjavík 2003-2004
- Myndatökumaður Fréttastofu Stöðvar 2 á Akureyri 2003-2004
- Framkvæmdastjóri Castor miðlunar ehf. 2003-2005
- Umbrotsmaður hjá Fréttablaðinu síðan 2005
- Blaðamaður hjá Fréttablaðinu síðan 2006
- Ljósmyndari Fréttablaðsins á Akureyri 2006-2008
- Aðstoðarmaður Einars Más Sigurðarsona alþingismanns síðan 2008
- Skrifstofumaður hjá Sýslumanninum á Húsavík sumarið 2008
Hlutir sem ég hef safnað
- Merktir pennar
- Frímerki
- Simpson myndir
- Körfuboltamyndir
- DVD diskar
- Bækur
- Gamlar myndavélar
Stjörnumerki
Það er ekki alveg á hreinu í hvaða stjörnumerki ég er, það fer eftir því hvaða blað ég les. Ég er fæddur á mörkum vogar og sporðdreka, nánar til tekið 23. október.
Í uppáhaldi
Kvikmyndir: Forrest Gump, Groundhog Day, Big fish, Vertigo, Rear Window
Plötur: Rubber Soul með Bítlunum, Parklife með Blur
Bækur: Bróðir minn ljónshjarta eftir Astrid Lindgren
