Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Konungur poppsins látinn í Los Angeles

26. júní 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Veit ekki af hverju er svona erfitt að trúa því að Michale Jackson sé látinn.. sennilega vegna þess að ferill hans er þannig að hann hefur oft verið eins og ódauðleg vera. Ég skrifaði þetta á Akureyri.net…

Michael JacksonFlesta daga fjallar Akureyri.net um atburði líðandi stundar á Akureyri. Suma daga teygjum við okkur yfir í Þingeyjarsýslur og alla leið út á Siglufjörð þegar stórtíðindi gerast. Í kvöld verður hins vegar haldið talsvert lengra en flesta aðra daga – alla leið til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem konungur poppsins – Michael Jackson lést í kvöld – fimmtugur að aldri.

Skrifstofa réttarlæknis í Los Angeles staðfesti andlátsfregnina undir miðnætti að íslenskum tíma, en sögusagnir um andlát söngvarans höfðu verið á sveimi í allt kvöld. Jackson hafði skipulagt röð tónleika í Lundúnum á næstu vikum og átti fjöldi íslendinga miða á tónleika hans þar.

Hinn 10 ára gamli Jackson aðdáandi, Atli Már Bjarnason frá Akureyri, er meðal þeirra sem hugðust berja goðið augum í Lundúnum. Atli hefur getið sér gott orð á skemmtunum hér í bænum í vetur með dansatriði við lög Jacksons. Móðir Atla segir þau vera döpur yfir fréttunum, enda hafi verið mikil tilhlökkun að sjá kappann og fyrirmyndina á sviði. Þau mæðgin eru nú stödd í Reykjavík, en Atli mun sýna Jackson atriðið sitt í brúðkaupi þar í bæ á morgun.

Til að heiðra minningu poppkongsins fylgir hér með upptöku af dansatriði Atla eins og það kom fyrir augu gesta á keppninnu um Ungfrú Norðurland fyrr í vor.

Aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni segir rektor

27. maí 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri segir hugmyndir vinnuhóps um sameiningu háskóla aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni. Tillögurnar voru ræddar á fundi háskólaráðs HA í dag. “Það sem við setjum helst fyrir okkur er að þessar tillögur eru allt of höfuðborgarmiðaðar. Í raun og veru er verið að tala um að leggja niður sjálfstæða háskóla á landsbyggðinni og setja upp fjóra háskóla á höfuðborgarsvæðinu,” sagði Þorsteinn í samtali við Akureyri.net síðdegis. Vinnuhópurinn starfaði á vegum Menntamálaráðuneytisins.

Í fréttatilkynningu frá Háskólaráði segir að upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál sé fagnað og að ráðið taki undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega hvað varðar aukna samvinnu milli háskóla. Ráðið er þó mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík og telur skorta fullnægjandi rökstuðning fyrir slíkum hugleiðingum.

Kristín Lea stórglæsileg í Ungfrú Ísland :)

25. maí 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Fegurðarsamkeppni Íslands fór fram í Reykjavík um helgina. Kristín Lea vinkona mín sem sigraði keppnina Ungfrú Norðurland í Sjallanum í síðasta mánuði kom heim með þrjá titla úr keppninni. Hún var kjörin Miss Elite stúlkan, Valencia stúlkan sem og vinsælasta stúlka keppninnar. Þá var Kristín valin ljósmyndafyrirsæta keppninnar.

Engin stúlka fékk fleiri titla í keppninni í ár! Til hamingju Kristín Lea :D

Sögulegur mannfjöldi á sviði Samkomuhússins um helgina

18. maí 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Nokkuð líklegt má telja að fjöldamet hafi verið slegin í Samkomuhúsinu á Akureyri um helgina þegar vorsýningar Point dans stúdíós fóru fram. Alls komu rúmlega 400 nemendur fram á sviði gamla leikhússins og þá voru þéttskipaðir bekkir á öllum sex sýningum helgarinnar og raunar var aðsóknin það mikil að margir máttu standa.

Sýningin var öll hin glæsilegasta og góður vitnisburður þess starfs sem unnið hefur verið í dansskólanum í vetur. Sigyn Blöndal, stofnandi skólans segir undirbúning sýningarinnar hafa staðið frá því í desember á síðasta ári en nemendurnir lögðu undir sig leikhúsið um síðustu helgi og voru stífar æfingar alla vikuna. Myndir frá fyrri sýningardeginum eru komnar á vefinn og eru myndir frá seinni sýningardeginum væntanlegar hingað í kvöld.

Páll Stefánsson ljósmyndari með fyrirlestur á Akureyri

6. maí 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Páll Stefánsson ljósmyndari heldur fyrirlestur í Kvos Menntaskólans á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 7. maí kl 17:15. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Það eru Sigurjón Svanbergsson og félagsmenn í Áhugaljósmyndaraklúbbi Akureyrar sem standa að því að fá ljósmyndarann norður og segir Sigurjón það mikinn heiður, enda sé Páll einn af þekktustu ljósmyndurum Íslands og mikið átrúnaðargoð fyrir áhugaljósmyndara. Páll hefur unnið bæði hér á landi og erlendis og er einn af ljósmyndurum tímaritsins Iceland Review.

Á fyrirlestrinum mun Páll meðal annars sýna myndir sem hann hefur verið að taka í Afríku en eftir fyrirlesturinn gefst gestum kostur á að leggja spurningar fyrir ljósmyndara. Þetta er eitthvað sem enginn áhugaljósmyndari á Akureyri ætti að láta fram hjá sér fara.

Nánar má lesa um starfsemi Áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar á vefsíðunni www.ljosmynd.net

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »