Örlygur Hnefill

Af listum og lestri lagabóka
Undanfarnar þrjár vikur hef ég verið í námskeiði í Stjórnskipunarrétti hjá Tim Murphy í Háskólanum á Akureyri. Stjórnskipunarréttir reyndist ansi áhugavert fag, en því miður náði ég ekki almennilegri tenginu við fagið fyrr en í síðustu vikunni. Ég veit samt að ég á eftir að búa að þeirri vitneskju sem ég náði þarna lengi. Í gær var prófað úr námskeiðinu og það gekk mjög vel. Ég skrifaði fjórar blaðsíður um túlkun stjórnarskrár og hvaða leiðir eru færar til þess. Meðal þess sem ég nefndi var hið sögufræga mál Marbury v. Madison þar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna gaf sjálfum sér réttinn til að túlka stjórnarskrá Bandaríkjanna. Einnig kom ég inn á þær deilur sem komu upp í Íslensku þjóðfélagi árið 2004 eftir að forsetinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin. Ég er þeirrar skoðunar að með því að draga frumvarpið til baka hafi ríkisstjórnin tekið af okkur stjórnarskrárbundinn rétt þjóðarinnar til að kjósa um málið, en í stjórnarskrá Íslands er skýrt kveðið á um að ef forseti synji lagafrumvaripi staðfestingar skuli leggja það í dóm þjóðarinnar.

Í dag byrjaði ég svo í nýrri vinnu. Ég mun á næstunni sitja yfir sýningum á Listasafni Akureyrar. Það er vel við hæfi að fyrsta sýningin sem ég sit yfir á safninu heitir Úrvalið og er yfirlitssýning bestu ljósmyndara Íslandssögunnar.  Eftir helgi sest ég í nýtt námskeið í háskólanjum, en það er samanburðarstjórnskipunarfræði hjá Ágústi Þór Árnasyni. Vona að fagið verði ekki jafn þungt og nafnið sem það ber, en það kemur í ljós eftir helgi.

Að láta sannleikann ekki þvælast fyrir góðri frétt
Ég hef stundum velt fyrir mér hvernig á því standi að fréttavefur Morgunblaðsins sé mest sótta vefsíða sem rituð er á Íslenska tungu. Eflaust má kenna um sama syndromi og veldur því að við kusum Árna Johnsen á þing í kosningum sem til komu vegna kröfu um breytingar, syndromi sem olíufurstar færðu þjóðinni á silfurfati; Fólk er fífl!

Fréttir Morgunblaðsins á netinu eru nær undantekningalaust uppfullar af ritvillum og oft einnig staðreyndavillum, erlendar fréttir illa þýddar og fyrirsagnir illa smíðaðar.

Hvort tilkoma karlsins með krullurnar gráu hafi eitthvað með aðal fyrirsögn dagsins að gera veit ég ekki – og efast raunar um það. Ég held að ástæða hennar sé einfaldlega hin lélega blaðamennska sem stunduð er á vefmiðlinum. Fyrirsögnin er „Jóhanna beitti sér gegn láninu“ og er þar átt við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og meint lán Norðmanna til Íslendinga. Er ég einn um það að finnast fyrirsögnin ótrúlega afdráttarlaus, sérstaklega þegar rennt er í greinina sem byrjar á orðiunum „Ég hefyr heyrt að…“ ?

Búnaðarbanki Íslands
Nú berast þær fréttir að stjórnendur Kaupþings hyggji á nafnabreytingu. Verður þá tekið upp fjórða nafnið á um það bil jafn mörgum árum. Árið 2004 hét bankinn Búnaðarbanki Íslands og var það vel. Þá um haustið var tekið upp nafnið KB banki og síðan nafnið Kaupþing á því herrans ári 2007. Reyndar fékk hann nýlega viðskeytið nýi framan við nafn sitt þó fátt annað hafi breyst. Nú skal bankinn hinsvegar heita Nordis. Það verður seint sagt að Nordis sé fagurt og hljómmikið nafn á viðskiptabanka sem einbeitir sér að Íslandi og þjónustu við Íslendinga.

Ég held að fólk á Íslandi sé almennt komið með nóg af nafnabreytingum. Rotið burðarvirki viðarhúss lagast ekki þó það sé málað að utan. Hugarfarsbreyting er hinsvegar eitthvað sem mætti gjarnan eiga sér stað.

Sex ungir ljósmyndarar sýna á Bláu könnunni
Í kvöld opnar samsýning áhugaljósmyndara frá Akureyri á kaffihúsinu Bláu könnunni í Hafnarstræti. Þar sýna sex ljósmyndarar verk sín sem hafa orðið til á síðustu árum, hér á Akureyri og víðar um land. Nokkra þeirra þekki ég mjög vel, aðrir eru kunningjar og enn aðrir eru mér ókunnugir. Það verður því gaman að fara og kíkja á þessa sýningu á eftir.

Sigurjón vinur minn kom til mín áðan og ég tók við hann stutt viðtal fyrir Akureyri.net

“Við höfum flest verið að fást við götulíf og mannlífsmyndir, með einstaka undantekningum þó. Myndirnar eru allar teknar á svarthvítar filmur og við framköllum sjálf og stækkum,” segir Sigurjón Már Svanbergsson, einn ljósmyndaranna, en auk hans sýna Elvar Freyr Pálsson, Friðjón Snorrason, Hugi Hlynsson, Hörður Edvinsson og  Marta Kusinska.

Sýningin opnar klukkan átta í kvöld og eru allir velkomnir.

Lissabon sáttmálinn og áhrif hans á stöðu Íslands sem aðildarríkis ESB
Hugmyndina að stjórnarskrá Evrópu má rekja til loka síðustu aldar. Í ljósi stækkunar sambandsins þótti rétt að endurskoða stjórnskipun þess og þegar fleiri ríki fóru að banka á Evrópudyrnar upp úr aldarmótum, þótti rétt að ráðast endurbætur. Það var svo sumarið 2003 sem lögð voru fram drög að stjórnarskrársáttmála fyrir Evrópusambandið.

Hlutverk stjórnarskrár Evrópu var að leysa af hólmi fyrri sáttmála sambandsins. Þannig hefðu til að mynda Maastricht sáttmálinn og Rómar sáttmálinn horfið og stjórnarskráin tekið við þeirra hlutverki. Fyrsti kafli stjórnarskrárinnar fjallaði um það sem skilgreinir sambandið, markmið, valdsvið, ákvörðunartökuferli og stofnanir sambandsins. Annar kafli fjallaði um evrópskan ríkisborgararétt og grundvallarréttindi borgara sambandsins. Þriðji kaflinn skilgreindi stefnur og áætlanir sambandsins og sá fjórði sagði til um breytingar á stjórnarskránni sjálfri.

Stjórnarskráin var þess eðlis að öll aðildarlönd Evrópusambandsins þurftu að samþykkja hana, annað hvort á þjóðþingi viðkomandi ríkis eða í þjóðaratkvæðagreiðslu. Tíu þjóðir boðuðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskránna og sumarið 2005 samþykktu Spánn og Lúxemborg stjórnarskránna. Frakkland og Holland höfnuðu hins vegar stjórnarskránni og í kjölfarið var þjóðaratkvæðagreiðslu frestað í hinum sex löndunum. Aðrar þjóðir höfðu þegar samþykkt með öðrum hætti, oftast á þjóðþingi. Það fór því svo að stjórnarskráin var tekin af dagskrá, þó meirihluti þjóða sambandsins hefði samþykkt hana.

Í kjölfarið fór af stað vinna við Lissabon-sáttmálann. Evrópusambandið var talsvert gagnrýnt vegna þess að það þótti ekki hafa tekið mark á skilaboðum þjóðaratkvæðagreiðslnanna í Frakklandi og Hollandi með því að ráðast í gerð Lissabon-sáttmálans, sem þótti keimlíkur stjórnarskránni. Valéry Giscard d’Estaing, fyrrum forseti Frakklands, sagði til dæmis í viðtali við marga Evrópska fjölmiðla að Lissabon-sáttmálinn væri í raun það sama og stjórnarskráin sem hafnað var, aðeins forminu hefði verið breytt. Auk þess hefur gagnrýni verið beint að sambandinu vegna þess að sáttmálinn sé ólæsilegur og að jafnvel helstu sérfræðingar á sviði Evrópuréttar væru margar vikur að komast í gegnum hann. Upphaflegu stjórnarskránni var ætlað að einfalda reglur sambandsins og bæta læsileika og skýrleika þeirra. Lissabon-sáttmálinn þótti hins vegar þvert á móti gera reglur sambandsins ólæsilegri.

Lissabon-sáttmálinn var undirritaður af 27 þjóðhöfðingjum aðildarríkja ESB þann 13. desember 2007. Írar fóru þá leið að leggja sáttmálann í þjóðaratkvæðagreiðslu og var honum hafnað sumarið 2008. Boðaðar hafa verið aðrar kosningar um sáttmálann og fara þær fram 2. Október næstkomandi.

Hlutverk og áhrif Lissabon-sáttmálans

Í kynningarriti Evrópusambandsins um Lissabon-sáttmálann segir að hin mikla stækkun Evrópusambandsins á undanförnum árum og áratugum kalli á nýtt skipulag. Þar segir einnig að núverandi skipun mála gefi sambandinu ekki réttu tækin til að taka á stórum málum sem bíða úrlausnar, t.a.m. efnahagsvanda þjóða, breytinga á veðurfari, glæpum sem teygja sig yfir landamæri og þörfinni á að stuðla að sjálfbærri þróun. Þá tekur Lissabon-sáttmálinn mið af fjölda ríkja sambandsins en fyrri sáttmálar voru gerðir þegar þjóðir sambandsins voru mun færri og einsleitari.

Aðildarþjóðir sambandsins voru í upphafi sex talsins en eru núna 27 talsins, og útlit fyrir frekari fjölgun á næstu árum.

Við gerð Lissabon-sáttmálansa segist sambandið hafa haft þrennt að leiðarljósi; Í fyrsta lagi að gera Evrópusambandið lýðræðislegra, í öðru lagi að móta skilvirkara Evrópusamband og í þriðja lagi að skilgreina völd Evrópusambandsins með skýrari hætti.

Í sáttmálanum eru til dæmis ákvæði um beina þátttöku borgaranna til að hafa áhrif á ákvarðanatöku. Þá er í sáttmálanum nálægðarregla sem segir að til um að ákvarðanir skuli ekki teknar á hærra stjórnsýslustigi en nauðsynlegt er. Þjóðþing geta með þessari nýju reglu mótmælt ákvörðunum Evrópusambandsins sem þeim finnst eðlilegra og réttara að teknar séu heima fyrir, af viðkomandi þjóðþingi eða þjóðþingum.

Með sáttmálanum verður neitunarvald aðildarríkja einnig afnumið í mörgum málum og þess í stað notast við aukinn meirihlusta til að fá mál samþykkt. Þetta á til dæmis við um mál er varða löggæslu og dóma. Þetta veikir stöðu minni ríkja, eins og Íslands, í sambandinu komi til aðildar okkar. En hvaða áhrif hefur Lissabon-sáttmálin fyrir smáríki eins og Ísland?

Vægi Íslands í ESB – með eða án Lissabon-sáttmálans

Samkvæmt Lissabon-sáttmálanum verða völd Evrópuþingsins aukin með samákvörðunarferli. Mun þingið þannig fá jöfn tækifæri á við ráðherraráð sambandsins til að móta nýja löggjöf.

Fámennasta ríki Evrópusambandsins nú er Malta en gangi Ísland inn mun það taka við stöðu Möltu sem fámennasta ríki sambandsins. Ekki eru líkur á því að fámennara ríki en Ísland gangi í sambandið í bráð, og jafnvel ekki heldur þó litið sé til langs tíma.

Malta hefur nú fimm þingmenn á Evrópuþinginu en samkvæmt nýjum reglum Lissabon-sáttmálans fær hvert aðildarríki sex þingmenn að lámarki. Má því ætla að Malta og Ísland fengju hvort um sig sex þingmenn – auk Kýpur, Eistlands og Lúxemborgar sem hafa nú þegar sex þingmenn á Evrópuþinginu.

Enn um sinn er Ráðherraráðið skipað einum fulltrúa frá hverju aðildarríki og hafa minni ríki þannig hlutfallslega meiri áhrif þar. Með auknum völdum Evrópuþingsins má færa rök fyrir því að vægi ráðherraráðsins minki og þannig drægi úr hugsanlegum áhrifum Íslands innan sambandsins, þrátt fyrir reglu Lissabon-sáttmálans um lágmarksfjölda þingmanna frá hverju ríki.

Þessi völd Íslands sem aðildarríkis verða þó minni eftir árið 2014 ef Lissabon-sáttmálinn verður samþykktur, en þá stendur til að fjöldi í Ráðherraráðinu endurspegli 2/3 af fjölda aðildarríkja og vægi innan ráðsins fari eftir fólksfjölda hvers aðildarríkis.

Það er því mitt mat að heilt yfir dragi Lissabon-sáttmálinn úr vægi Íslands, gangi það í sambandið.

Áhrif Lissabon-sáttmálans á EES

Núverandi aðkoma Íslands að samvinnu í Evrópu er í gegnum EES samninginn. Samningurinn var undirritaður í Portúgal árið 1992 en gekk í gildi hér á landi 1. Janúar 1994 með lögum frá Alþingi nr. 2/1993.

Viðskipti Íslands við lönd Evrópusambandsins eru mikil og skiptir EES samningurinn því miklu máli fyrir íslensk fyrirtæki og viðskiptahagsmuni þeirra. Í skýrslu Evrópunefndar forsætisráðuneytisins frá 2007 kemur t.a.m. fram að um 75 prósent af útflutningi frá Íslandi árið 2005 hafi farið til ESB ríkjanna, sem þá voru 25 talsins, og að um 62 prósent innflutnings hingað til lands hafi kom frá þeim ríkjum.

Breytt valdahlutfall innan ESB getur haft áhrif á samninga eins og þann um Evrópska Efnahagssvæðið. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er megintengiliður EES ríkjanna við Evrópusambandið. Með Lissabon-sáttmálanum er vægi Evrópuþingsins aukið og stefnt er að breytingum á vægi innan ráðherraráðsins. Með auknu vægi þingsins má ætla að aðgangur EES ríkjanna utan ESB skerðist að stofnunum sambandsins og þannig séum við í minni tengslum við þá aðila sem taka ákvarðanir innan sambandsins. Þær ákvarðanir hafa engu að síður víðtæk áhrif hérlendis í gegnum samninginn um hið Evrópska Efnahagssvæði. Stærsta spurningin sem við stöndum frammi fyrir núna er þó sú hvort við ætlum að vera áfram á hliðarlínu Evrópu eða taka þátt í samstarfinu af heilum hug.

Konungur poppsins látinn í Los Angeles
Veit ekki af hverju er svona erfitt að trúa því að Michale Jackson sé látinn.. sennilega vegna þess að ferill hans er þannig að hann hefur oft verið eins og ódauðleg vera. Ég skrifaði þetta á Akureyri.net…

Flesta daga fjallar Akureyri.net um atburði líðandi stundar á Akureyri. Suma daga teygjum við okkur yfir í Þingeyjarsýslur og alla leið út á Siglufjörð þegar stórtíðindi gerast. Í kvöld verður hins vegar haldið talsvert lengra en flesta aðra daga – alla leið til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem konungur poppsins – Michael Jackson lést í kvöld – fimmtugur að aldri.

Skrifstofa réttarlæknis í Los Angeles staðfesti andlátsfregnina undir miðnætti að íslenskum tíma, en sögusagnir um andlát söngvarans höfðu verið á sveimi í allt kvöld. Jackson hafði skipulagt röð tónleika í Lundúnum á næstu vikum og átti fjöldi íslendinga miða á tónleika hans þar.

Hinn 10 ára gamli Jackson aðdáandi, Atli Már Bjarnason frá Akureyri, er meðal þeirra sem hugðust berja goðið augum í Lundúnum. Atli hefur getið sér gott orð á skemmtunum hér í bænum í vetur með dansatriði við lög Jacksons. Móðir Atla segir þau vera döpur yfir fréttunum, enda hafi verið mikil tilhlökkun að sjá kappann og fyrirmyndina á sviði. Þau mæðgin eru nú stödd í Reykjavík, en Atli mun sýna Jackson atriðið sitt í brúðkaupi þar í bæ á morgun.

Til að heiðra minningu poppkongsins fylgir hér með upptöku af dansatriði Atla eins og það kom fyrir augu gesta á keppninnu um Ungfrú Norðurland fyrr í vor.

Aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni segir rektor
Þorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri segir hugmyndir vinnuhóps um sameiningu háskóla aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni. Tillögurnar voru ræddar á fundi háskólaráðs HA í dag. “Það sem við setjum helst fyrir okkur er að þessar tillögur eru allt of höfuðborgarmiðaðar. Í raun og veru er verið að tala um að leggja niður sjálfstæða háskóla á landsbyggðinni og setja upp fjóra háskóla á höfuðborgarsvæðinu,” sagði Þorsteinn í samtali við Akureyri.net síðdegis. Vinnuhópurinn starfaði á vegum Menntamálaráðuneytisins.

Í fréttatilkynningu frá Háskólaráði segir að upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál sé fagnað og að ráðið taki undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega hvað varðar aukna samvinnu milli háskóla. Ráðið er þó mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík og telur skorta fullnægjandi rökstuðning fyrir slíkum hugleiðingum.

Kristín Lea stórglæsileg í Ungfrú Ísland :)
Fegurðarsamkeppni Íslands fór fram í Reykjavík um helgina. Kristín Lea vinkona mín sem sigraði keppnina Ungfrú Norðurland í Sjallanum í síðasta mánuði kom heim með þrjá titla úr keppninni. Hún var kjörin Miss Elite stúlkan, Valencia stúlkan sem og vinsælasta stúlka keppninnar. Þá var Kristín valin ljósmyndafyrirsæta keppninnar.

Engin stúlka fékk fleiri titla í keppninni í ár! Til hamingju Kristín Lea

Sögulegur mannfjöldi á sviði Samkomuhússins um helgina
Nokkuð líklegt má telja að fjöldamet hafi verið slegin í Samkomuhúsinu á Akureyri um helgina þegar vorsýningar Point dans stúdíós fóru fram. Alls komu rúmlega 400 nemendur fram á sviði gamla leikhússins og þá voru þéttskipaðir bekkir á öllum sex sýningum helgarinnar og raunar var aðsóknin það mikil að margir máttu standa.

Sýningin var öll hin glæsilegasta og góður vitnisburður þess starfs sem unnið hefur verið í dansskólanum í vetur. Sigyn Blöndal, stofnandi skólans segir undirbúning sýningarinnar hafa staðið frá því í desember á síðasta ári en nemendurnir lögðu undir sig leikhúsið um síðustu helgi og voru stífar æfingar alla vikuna. Myndir frá fyrri sýningardeginum eru komnar á vefinn og eru myndir frá seinni sýningardeginum væntanlegar hingað í kvöld.

Páll Stefánsson ljósmyndari með fyrirlestur á Akureyri
Páll Stefánsson ljósmyndari heldur fyrirlestur í Kvos Menntaskólans á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 7. maí kl 17:15. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Það eru Sigurjón Svanbergsson og félagsmenn í Áhugaljósmyndaraklúbbi Akureyrar sem standa að því að fá ljósmyndarann norður og segir Sigurjón það mikinn heiður, enda sé Páll einn af þekktustu ljósmyndurum Íslands og mikið átrúnaðargoð fyrir áhugaljósmyndara. Páll hefur unnið bæði hér á landi og erlendis og er einn af ljósmyndurum tímaritsins Iceland Review.

Á fyrirlestrinum mun Páll meðal annars sýna myndir sem hann hefur verið að taka í Afríku en eftir fyrirlesturinn gefst gestum kostur á að leggja spurningar fyrir ljósmyndara. Þetta er eitthvað sem enginn áhugaljósmyndari á Akureyri ætti að láta fram hjá sér fara.

Nánar má lesa um starfsemi Áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar á vefsíðunni www.ljosmynd.net