Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Af listum og lestri lagabóka

10. október 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Hæstiréttur BandaríkjannaUndanfarnar þrjár vikur hef ég verið í námskeiði í Stjórnskipunarrétti hjá Tim Murphy í Háskólanum á Akureyri. Stjórnskipunarréttir reyndist ansi áhugavert fag, en því miður náði ég ekki almennilegri tenginu við fagið fyrr en í síðustu vikunni. Ég veit samt að ég á eftir að búa að þeirri vitneskju sem ég náði þarna lengi. Í gær var prófað úr námskeiðinu og það gekk mjög vel. Ég skrifaði fjórar blaðsíður um túlkun stjórnarskrár og hvaða leiðir eru færar til þess. Meðal þess sem ég nefndi var hið sögufræga mál Marbury v. Madison þar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna gaf sjálfum sér réttinn til að túlka stjórnarskrá Bandaríkjanna. Einnig kom ég inn á þær deilur sem komu upp í Íslensku þjóðfélagi árið 2004 eftir að forsetinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin. Ég er þeirrar skoðunar að með því að draga frumvarpið til baka hafi ríkisstjórnin tekið af okkur stjórnarskrárbundinn rétt þjóðarinnar til að kjósa um málið, en í stjórnarskrá Íslands er skýrt kveðið á um að ef forseti synji lagafrumvaripi staðfestingar skuli leggja það í dóm þjóðarinnar.

Í dag byrjaði ég svo í nýrri vinnu. Ég mun á næstunni sitja yfir sýningum á Listasafni Akureyrar. Það er vel við hæfi að fyrsta sýningin sem ég sit yfir á safninu heitir Úrvalið og er yfirlitssýning bestu ljósmyndara Íslandssögunnar. Eftir helgi sest ég í nýtt námskeið í háskólanjum, en það er samanburðarstjórnskipunarfræði hjá Ágústi Þór Árnasyni. Vona að fagið verði ekki jafn þungt og nafnið sem það ber, en það kemur í ljós eftir helgi.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »