Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Að láta sannleikann ekki þvælast fyrir góðri frétt

10. október 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég hef stundum velt fyrir mér hvernig á því standi að fréttavefur Morgunblaðsins sé mest sótta vefsíða sem rituð er á Íslenska tungu. Eflaust má kenna um sama syndromi og veldur því að við kusum Árna Johnsen á þing í kosningum sem til komu vegna kröfu um breytingar, syndromi sem olíufurstar færðu þjóðinni á silfurfati; Fólk er fífl!

Fréttir Morgunblaðsins á netinu eru nær undantekningalaust uppfullar af ritvillum og oft einnig staðreyndavillum, erlendar fréttir illa þýddar og fyrirsagnir illa smíðaðar.

Hvort tilkoma karlsins með krullurnar gráu hafi eitthvað með aðal fyrirsögn dagsins að gera veit ég ekki – og efast raunar um það. Ég held að ástæða hennar sé einfaldlega hin lélega blaðamennska sem stunduð er á vefmiðlinum. Fyrirsögnin er „Jóhanna beitti sér gegn láninu“ og er þar átt við Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og meint lán Norðmanna til Íslendinga. Er ég einn um það að finnast fyrirsögnin ótrúlega afdráttarlaus, sérstaklega þegar rennt er í greinina sem byrjar á orðiunum „Ég hefyr heyrt að…“ ?

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »