Af listum og lestri lagabóka
10. október 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Undanfarnar þrjár vikur hef ég verið í námskeiði í Stjórnskipunarrétti hjá Tim Murphy í Háskólanum á Akureyri. Stjórnskipunarréttir reyndist ansi áhugavert fag, en því miður náði ég ekki almennilegri tenginu við fagið fyrr en í síðustu vikunni. Ég veit samt að ég á eftir að búa að þeirri vitneskju sem ég náði þarna lengi. Í gær var prófað úr námskeiðinu og það gekk mjög vel. Ég skrifaði fjórar blaðsíður um túlkun stjórnarskrár og hvaða leiðir eru færar til þess. Meðal þess sem ég nefndi var hið sögufræga mál Marbury v. Madison þar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna gaf sjálfum sér réttinn til að túlka stjórnarskrá Bandaríkjanna. Einnig kom ég inn á þær deilur sem komu upp í Íslensku þjóðfélagi árið 2004 eftir að forsetinn neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin. Ég er þeirrar skoðunar að með því að draga frumvarpið til baka hafi ríkisstjórnin tekið af okkur stjórnarskrárbundinn rétt þjóðarinnar til að kjósa um málið, en í stjórnarskrá Íslands er skýrt kveðið á um að ef forseti synji lagafrumvaripi staðfestingar skuli leggja það í dóm þjóðarinnar.
Í dag byrjaði ég svo í nýrri vinnu. Ég mun á næstunni sitja yfir sýningum á Listasafni Akureyrar. Það er vel við hæfi að fyrsta sýningin sem ég sit yfir á safninu heitir Úrvalið og er yfirlitssýning bestu ljósmyndara Íslandssögunnar. Eftir helgi sest ég í nýtt námskeið í háskólanjum, en það er samanburðarstjórnskipunarfræði hjá Ágústi Þór Árnasyni. Vona að fagið verði ekki jafn þungt og nafnið sem það ber, en það kemur í ljós eftir helgi.
