Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Sex ungir ljósmyndarar sýna á Bláu könnunni

28. september 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ein mynda Sigurjóns af sýningunniÍ kvöld opnar samsýning áhugaljósmyndara frá Akureyri á kaffihúsinu Bláu könnunni í Hafnarstræti. Þar sýna sex ljósmyndarar verk sín sem hafa orðið til á síðustu árum, hér á Akureyri og víðar um land. Nokkra þeirra þekki ég mjög vel, aðrir eru kunningjar og enn aðrir eru mér ókunnugir. Það verður því gaman að fara og kíkja á þessa sýningu á eftir.

Sigurjón vinur minn kom til mín áðan og ég tók við hann stutt viðtal fyrir Akureyri.net

“Við höfum flest verið að fást við götulíf og mannlífsmyndir, með einstaka undantekningum þó. Myndirnar eru allar teknar á svarthvítar filmur og við framköllum sjálf og stækkum,” segir Sigurjón Már Svanbergsson, einn ljósmyndaranna, en auk hans sýna Elvar Freyr Pálsson, Friðjón Snorrason, Hugi Hlynsson, Hörður Edvinsson og Marta Kusinska.

Sýningin opnar klukkan átta í kvöld og eru allir velkomnir.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »