Búnaðarbanki Íslands
29. september 2009 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Nú berast þær fréttir að stjórnendur Kaupþings hyggji á nafnabreytingu. Verður þá tekið upp fjórða nafnið á um það bil jafn mörgum árum. Árið 2004 hét bankinn Búnaðarbanki Íslands og var það vel. Þá um haustið var tekið upp nafnið KB banki og síðan nafnið Kaupþing á því herrans ári 2007. Reyndar fékk hann nýlega viðskeytið nýi framan við nafn sitt þó fátt annað hafi breyst. Nú skal bankinn hinsvegar heita Nordis. Það verður seint sagt að Nordis sé fagurt og hljómmikið nafn á viðskiptabanka sem einbeitir sér að Íslandi og þjónustu við Íslendinga.
Ég held að fólk á Íslandi sé almennt komið með nóg af nafnabreytingum. Rotið burðarvirki viðarhúss lagast ekki þó það sé málað að utan. Hugarfarsbreyting er hinsvegar eitthvað sem mætti gjarnan eiga sér stað.
