Konungur poppsins látinn í Los Angeles
26. júní 2009 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonVeit ekki af hverju er svona erfitt að trúa því að Michale Jackson sé látinn.. sennilega vegna þess að ferill hans er þannig að hann hefur oft verið eins og ódauðleg vera. Ég skrifaði þetta á Akureyri.net…
Flesta daga fjallar Akureyri.net um atburði líðandi stundar á Akureyri. Suma daga teygjum við okkur yfir í Þingeyjarsýslur og alla leið út á Siglufjörð þegar stórtíðindi gerast. Í kvöld verður hins vegar haldið talsvert lengra en flesta aðra daga – alla leið til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem konungur poppsins – Michael Jackson lést í kvöld – fimmtugur að aldri.
Skrifstofa réttarlæknis í Los Angeles staðfesti andlátsfregnina undir miðnætti að íslenskum tíma, en sögusagnir um andlát söngvarans höfðu verið á sveimi í allt kvöld. Jackson hafði skipulagt röð tónleika í Lundúnum á næstu vikum og átti fjöldi íslendinga miða á tónleika hans þar.
Hinn 10 ára gamli Jackson aðdáandi, Atli Már Bjarnason frá Akureyri, er meðal þeirra sem hugðust berja goðið augum í Lundúnum. Atli hefur getið sér gott orð á skemmtunum hér í bænum í vetur með dansatriði við lög Jacksons. Móðir Atla segir þau vera döpur yfir fréttunum, enda hafi verið mikil tilhlökkun að sjá kappann og fyrirmyndina á sviði. Þau mæðgin eru nú stödd í Reykjavík, en Atli mun sýna Jackson atriðið sitt í brúðkaupi þar í bæ á morgun.
Til að heiðra minningu poppkongsins fylgir hér með upptöku af dansatriði Atla eins og það kom fyrir augu gesta á keppninnu um Ungfrú Norðurland fyrr í vor.