Aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni segir rektor
27. maí 2009 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÞorsteinn Gunnarsson rektor Háskólans á Akureyri segir hugmyndir vinnuhóps um sameiningu háskóla aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni. Tillögurnar voru ræddar á fundi háskólaráðs HA í dag. “Það sem við setjum helst fyrir okkur er að þessar tillögur eru allt of höfuðborgarmiðaðar. Í raun og veru er verið að tala um að leggja niður sjálfstæða háskóla á landsbyggðinni og setja upp fjóra háskóla á höfuðborgarsvæðinu,” sagði Þorsteinn í samtali við Akureyri.net síðdegis. Vinnuhópurinn starfaði á vegum Menntamálaráðuneytisins.
Í fréttatilkynningu frá Háskólaráði segir að upplýstri umræðu um vísindi og háskólamál sé fagnað og að ráðið taki undir ýmis sjónarmið sem koma fram í þessum úttektum, sérstaklega hvað varðar aukna samvinnu milli háskóla. Ráðið er þó mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík og telur skorta fullnægjandi rökstuðning fyrir slíkum hugleiðingum.
