Frábær árangur hjá krökkunum úr Þelamerkurskóla
30. apríl 2009 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÞelamerkurskóli náði í kvöld 8. sæti í úrslitakeppni Skólahreystis, en alls hófu 110 skólar keppni í ár. Árangur Þelamerkurskóla er því mikill og ekki minni þegar litið er til stærðar skólans. Keppnin fór fram í Laugardalshöll í Reykjavík og var sýnd í beinni útsendingu í Sjónvarpinu. Ég fór og myndaði árshátíð Þelamerkurskóla fyrr á árinu og heillaðist alveg af framtakssemi þeirra. Það þarf oft ekki fjölmennustu skólana til að gera flottustu hlutina, það þekki ég vel
Lið Þelamerkur skipuðu Steinunn Davíðsdóttir, Þórdís Björk Gísladóttir, Daníel Freyr Sigmarsson og Björgvin Helgason. Þórdís Björk náði 2. sæti í hreystigreip og gerði 52 armbeygjur sem er gríðarlega góður árangur. Þá stóð Daníel Freyr sig mjög vel í upplyftum og upphífingum, en hann gerði 35 upplyftur og 31 upphífingu og varð í 4-5 sæti í þeim greinum. Flottur árangur, til hamingju!
