Of mikið að gera…
11. september 2008 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÞó ég hafi alltaf haft gott lag á að finna mér eitthvað að fást við, þá held ég að aldrei áður hafi verið jafn mikið að gera í einni viku hjá mér og núna. Ég er með 2 ljósmyndasýningar í gangi, fer í 3 próf, er að opna gallerí í stofunni minni og er að halda stóra ráðstefnu um helgina. Veit ekki af hverju, en ég held að þetta sé góður tími til að blogga =)
Á föstudaginn opnuðum við Kristín Lea sýninguna okkar í Safnahúsinu á Húsavík. Ég fékk salinn seinnipart fimmtudags og sá fram á að vera til morguns að hengja upp, en þá kom pabbi eins og kallaður og hjálpaði mér að hengja upp. Vorum samt langt fram á nótt en það var ótrúlega gaman hjá okkur feðgunum. Mætingin á opnunina var miklu betri en við höfðum þorað að vona, enda voru yfir 50 manns sem skrifuðu í gestabókina. Ég ræddi við forstöðumann safnsins í dag og hann tjáði mér að aðsóknin hafi verið góð alla vikuna. Á mánudaginn fór ég í próf í upplýsingalögunum og persónurétti. Það gekk vel þó lítill tími hefði gefist til lesturs. Á þriðjudaginn réðst ég svo í það verkefni að sauma gardínur fyrir gluggana í herberginu mínu. Ég keypti reyndar faldað efni en saumaði sjálfur borða og festingar á það.
Annars hafa þrjú verkefni átt huga minn allan þessa vikuna. Á morgun fer ég í 2 próf, annars vegar úr sveitastjórnarrétti og hinsvegar úr stjórnsýlurétti. Um kvöldið er svo opnun á ljósmyndasýningu Arnars Ómarssonar í Gallerí 13 þrep sem við Ingimar höfum stofnað í stofunni okkar. Við tökum búsetu okkar í Listagilinu á Akureyri mjög alvarlega. Stærsta verkefnið sem ég hef þó verið að fást við þessa vikuna er að ganga frá öllum lausum endum í sambandi við málþing sem ég hef verið að skipuleggja frá í sumar og fer fram á laugardaginn. Þar verður rætt um möguleg áhrif evrópusambandsaðildar á landsbyggðina. Var að fá staðfest að einn ráðherra kemur og talar hjá mér =) Í gær útbjó ég svo auglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Ég á opnuninni á Húsavík

Allir að skoða myndir =)




Auglýsingin mín í Fréttablaðinu í dag um málþingið sem ég hef verið að skipuleggja síðan í sumar.

Stofan okkar Ingimars eftir að við breyttum henni í sýningarsal =)
