Stórasta land í heimi!
23. ágúst 2008 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonFyrir nokkrum árum kom spurning í Gettu betur um hver væru kjörorð Íslenska lýðveldisins. Svarið við spurningunni var að lýðveldið ætti sér engin kjörorð. Þar var rétt þar til í gær. Þá fékk ég þessa hugmynd.

Ef þig langar í svona bol getur þú sent mér tölvupóst á bolir@hnefill.net og tilgreint stærð (S/M/L/XL) og snið (stráka eða stelpusnið). Bolurinn kostar 2500 kr. og er hægt að panta hann hérna til 3. september
Fyrir nokkrum árum fékk ónefnd vinkona mín mikilmennskubrjálæði og stofnaði leynifélag. Ég var einn af þremur leynilegum félögum og fékk dulnefnið 0808. Þar sem í dag er 08/08/08 og klukkan er 08:08:08 þá hlýtur eitthvað spennandi að gerast.