Kamillu Einarsdóttur heitkonu mína dreymdi mig um daginn. Samkvæmt vefsíðunni draumur.is er það til marks um ógæfu að dreyma mig og hún var svo væn að benda mér á það. Ég ákvað því að senda þeim á draumur.is smá bréf. Þetta er að sjálfsögðu spuni að minni hálfu og einungis til gamans gert.
Titill: Af draugum og draumum
Frá: Örlygur Hnefill Örlygsson
Dagsetning: mánudagur, 21. apríl 2008 12:25 pm
Til: draumur@draumur.is
Sælar Gyða og Hjördís,
Í nótt birtist ég vinkonu minni í draumi. Í fyrstu var hún mjög ánægð og sagði mér spennt frá því. Af forvitni kattarins langaði hana þó að vita hvort einhver dýpri merking lægi að baki, enda hefur verið sérstök spenna á milli okkar um nokkurt skeið. Hún fór því á vefsíðuna draumur.is og fletti upp nafninu mínu. Þar komst hún hins vegar að því að það að dreyma mig boðar bara alls ekki gott. Orðrétt skilgreining ykkar á nafni mínu er
svohljóðandi:
„Örlygur
Er fyrir erfiðleikum og höftum á framabraut þinni.“
Vinkona mín er af þeirri gerð sem tekur öll merki mjög alvarlega og strax og hún hafði lesið þetta hringdi hún reið í mig en það samtal endaði með því að hún skellti á mig, eftir að ég reyndi að útskýra fyrir henni að svona nokkuð væri eitthvað sem lítið mark væri takandi á. Hún hafði þá kallað mig öllum illum nöfnum og sagt að ég ætti að halda mig fjarri, enda væri ég óheillakráka og stefndi vinnuframa hennar í hættu. Ég er núna búinn að vera að hringja til baka í á þriðja tíma og hún skellir alltaf á mig.
Öllu jöfnu er þetta yndisleg stelpa en þegar kemur að hjátrú og hindurvitnum er eins og hún verði allt önnur manneskja. Mig langar því að vita hvaða fræði liggja þarna að baki, ef einhver, svo ég geti betur útskýrt það fyrir henni. Getið þið sagt mér eitthvað um það?
Með von um skjót svör,
Örlygur Hnefill Örlygsson
Lesa meira »
(Engin ummæli)