Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Laugaskóli í Fréttablaðinu í dag

18. maí 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Vildi bara benda ykkur á þessa líka stórglæsilegu auglýsingu sem er í Fréttablaðinu í dag. Núna er allt á fullu í að kynna skólann og maður er stöðugt að frétta af einhverjum sem eru að fara þangað í haust. Ég held að næsti vetur á Laugum verði magnaður og mér sýnist að félagslífið muni slá öll met. Ömurlegt að vera farin þaðan en maður verður bara að kíkja reglulega í heimsókn.

Svo er hægt að lesa um nýtt námsfyrirkomulag á Laugum hér »

Sauðfé

17. maí 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Í aðdraganda nýafstaðinna alþingiskosninga fór af stað umræða sem mér þótti fremur skrítin. Ungt framsóknarfólk hafði aðrar kosningarnar í röð ákveðið að gera íslensku sauðkindina að tákni sínu. Höfðu ungliðarnir klætt gömul verslunarhús á Laugaveginum að utan með myndum af kindinni og útbúið ýmsan varning með henni einnig. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á aðdáendum bolaverslunarinnar Ósóma við sömu götu, en verslunin hefur gert garðinn frægan með Ósóma-kindinni og fleiri frumlegum bolum. Töldu þeir að þarna væri framsókn hreinlega að stela kindinni sinni. Ég ákvað að skoða þessar tvær kindur og gat nú ekki séð margt líkt með þeim, nema kannski þá staðreynd að báðar eru þær jú kindur. Augu voru á sínum stað sem og horn, nef og munnur. Ekki fékk þetta því mikið á mig og ég bjóst raunar ekki við að velta þessu meira fyrir mér.

Í gærkvöldi var ég svo á rölti á Laugaveginum og sá þá hvar einhverjir voru búnir að spreyja utan á skrifstofu framsóknar og yfir kindina þeirra upp á enska tungu að það væri einungis ein sönn kind. Það vakti mig til umhugsunar.
Getur verið að staðan sé orðin sú að stór hluti yngri kynslóðarinnar viti ekkert um landbúnað. Getur verið að staðan sé sú að fyrir mörgum sé Ósóma-kindin hin eina sanna kind, og að aðrar kindur séu í raun bara eftirlíking af henni.

Bilið milli sveita landsins og höfuðborgarinnar verður sífellt meira og það hræðir mig hversu lítinn skilning margir borgarbúar hafa oft á lífinu úti á landi. Reykvíkingar eru svo uppteknir af því að vera stórborgarbúar og gleyma að slappa af og kynnast landinu sem við búum í. Nú er sumarið komið og ég held að það væri þjóðráð að fólk notaði góða veðrið til að ferðast og kynnast þessu landi sem við segjum svo stolt frá á erlendri grundu, en virðumst sjálf svo lítið vita um.

Sjálfhverfir fjölmiðlar

8. maí 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Það er merkilegt að fylgjast með íslenskum fjölmiðlum þegar umfjöllunarefnið eru þeir sjálfir. Það er nefnilega þannig að í hvert skipti sem eitthvað gerist í fjölmiðlaheiminum keppast hinir fjölmiðlarnir um að velta sér upp úr því, eins og það skipti í alvöru einhverju máli. Þetta náði nýjum hæðum um daginn þegar einhver pési sem hét Krónikan og enginn keypti lagði upp laupana. Ég er kannski svona einfaldur en einhvernveginn þótti mér líklegt að ástæða þess að blaðið var lagt niður héldist eitthvað í hendur við þá staðreynd að öllum var sama um það. Ef fólk hefði haft jafn gríðarlegan áhuga á þessu blaði og stofnendur þess bjuggust við, hefði salan verið í samræmi við það.

Af hverju var það þá gert að stórmáli í öllum fjölmiðlum þegar blaðið hætti. Jú, af þeirri einföldu ástæðu að fjölmiðlar elska að tala um sjálfa sig og aðra fjölmiðla. Vísir ákvað í dag að birta frétt um það að Arna Schram, fyrrum aðstoðarritstjóri Krónikunnar, hefði ráðið sig sem blaðamann á Viðskiptablaðinu. Spurning hvort þeir muni fjalla af sama áhuga um nýráðinn verkstjóra í frystihúsinu á Stokkseyri?

Ofgnótt auglýsinga

8. maí 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Þegar ég var að læra margföldunartöfluna var mér sagt að besta leiðin til að læra væri að fara nógu oft yfir efnið. Þannig festist það best. Sama virðist eiga við um stjórnmálamenn. Einhvernveginn fer fólk að trúa þeim þegar þeir eru búnir að tyggja sama hlutinn aftur og aftur ofan í það. Einhver mörk hljóta þó að vera fyrir því hversu oft er hægt að segja fólki sama hlutinn. Sérstaklega þegar það er í formi rándýrra auglýsinga. Glitnir hefur nú slegið öll met en þeir eru með 7 auglýsingar í Fréttablaðinu í dag. Þar af er auglýsing á forsíðu og opnuauglýsing inni í blaðinu. Ég held að flestir væru til í að borga aðeins lægri vexti í stað þess að fá heilt Fréttablað af Glitnisauglýsingum inn um lúguna hjá sér.

Misvísandi skilaboð?

8. maí 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson


Mikið hefur verið rætt og ritað um hvers mikið merki Íslandshreyfingarinnar líkist merki ESS hugbúnaðarfyrirtækisins [x] sem meðal annars vinnur fyrir Alcoa. Ég rakst hins vegar á þessa mynd á vefsíðu hreyfingarinnar. Er það bara ég, eða líkist þetta heimili ekki dáltið á mengandi stóryðju? Sennilega hefur hönnuðurinn fundið þessa mynd á netinu og ákveðið að smella henni þarna án þess að spá sérstaklega mikið í því hvað ber fyrir augu. Spurning hvort merki flokksins hafi orðið til með svipuðum hætti?

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »