Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Líkur á sögulegum kosningum

4. febrúar 2007 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Mikil spenna ríkir í herbúðum Demókrata í Bandaríkjunum – nú þegar baráttan um útnefningu forsetaframbjóðanda flokksins er að komast á flug. Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2008 eru fyrir tvo hluti merkilegar. Þær eru fyrstu kosningarnar þar sem bæði kona og blökkumaður eru talin eiga raunhæfa möguleika á að ná kjöri. Þetta eru einnig fyrstu kosningarnar í áttatíu ár þar sem hvorki sitjandi forseti né varaforseti er í framboði.

Ferlið að útnefningu forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins er nú hafið og fyrir fram höfðu flestir talið nær öruggt að Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú og þingmaður New York fylkis, yrði útnefnd forsetaframbjóðandi. Raunar bjuggust margir við því að hún tæki slaginn á móti George Bush í kosningunum 2004 en svo fór þó ekki. Nú lítur hins vegar út fyrir að blökkumaðurinn Barack Obama muni veita henni harða samkeppni um tilnefninguna. Obama var kjörinn á þing árið 2005 og er af mörgum talinn ein bjartasta von flokksins og líklegt að hann komi með ferskan og nýjan blæ í forystusveitina. Fæstir bjuggust þó við því að hann myndi blanda sér í baráttuna um tilnefningu sem forsetaframbjóðandi flokksins eftir jafn stutta setu á þingi.

Theodore Sorensen, fyrrum ráðgjafi og samstarfsmaður John F. Kennedy segir Obama um margt minna sig á Kennedy. Líklegt er þó talið að verði hann forsetaframbjóðandi flokksins muni repúblikanar gera mikið úr reynsluleysi hans. Hillary hefur hins vegar reynslu sem þingmaður í tvö kjörtímabil auk þess að hafa staðið dyggilega við bakið á Bill Clinton í forsetatíð hans. Á hinn bógin er talið ljóst að repúblikanar muni ekki draga upp fagra mynd af henni, verði hún forsetaframbjóðandi flokksin og jafnvel að kynlífhneyksli Bill Clinton geti orðið henni erfitt. Að því leiti stendur Obama framar því hann er nokkurnvegin eins og óskrifað blað. Þá er einnig spurning hvort sú staðreynd að lengi hefur verið gert ráð fyrir Hillary í framboð geti verið farin að skemma fyrir henni.

Skoðanakannanir í Bandaríkjunum hafa sýnt að 86 prósent treysta konu til embættis forseta og 93 prósent treysta þeldökkum. Ef þær tölur reynast réttar eru þær mun hærri en áður í sögu Bandaríkjanna. Sögulegar óvinsældir sitjandi forseta geta líka átt sinn þátt í að fólk er tilbúið til að sjá breytingar. Hillary hefur þegar líst því yfir að nái hún kjöri muni hún binda enda á stíðsrekstur í Írak.

Það er ljóst að hvort þeirra um sig myndi brjóta blað í sögu bandarískra stjórnmála ef það næði kjöri. Bandaríkjamenn virðast til í breytingar og það mun vinna með frambjóðendum demókrata.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »