Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Eru menn almennt í ruglinu?

8. nóvember 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Elvar Ingi sendi mér þessa mynd af mér og Halla Orra áðan, ég veit ekki alveg hvert tilefnið var, en menn eru greinilega í ruglinu þarna. Við Haraldur Orri höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina og oft á tíðum endaði það með því að annar eða báðir voru hálf- eða al-naktir.

Elvar Ingi sá sér gróðaleið með því að hóat birtingu þessarar myndar á alnetinu, nema ég greiddi honum væna fúlgu fjár. Ég ákvað hins vegar að slá öll vopn úr höndum hans með því að birta hana sjálfur. Nú verður hann bara að finna eitthvað meira krassandi í myndasafni sínu.

Besta lag í heimi og geimi!

1. nóvember 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég er loksins búinn að finna besta lag í heimi og geimi, og jafnvel þó víðar væri leitað. Það er lagið Bananaphone með kanadíska söngvaranum Raffi, spilað á tvöföldum hraða. Þetta er alveg óskaplega ávanabindanid verð ég að segja. Mæli með að þið hin prófið.

Horfa og hlusta!

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »