Í fréttum er þetta helst…
24. október 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Ég átti afmæli í gær. Ég bjóst ekki við að neinn myndi muna eftir því en það var nú heldur betur ekki svo, enda sá Fréttablaðið til þess með því að skella mér í afmælisdálkinn sinn. Það var því fullt starf hjá mér allan daginn að taka við sms kveðjum og þess háttar. Um kvöldið var fundur hjá ungum jafnaðarmönnum og þar fékk ég þennan líka fína pakka frá Valdísi og köku frá Berglindi. Langt síðan ég hef fengið köku á afmælinu mínu svo þetta vakti bara upp gamlar minningar.
Undanfarnar tvo daga hef ég verið í lögfræðitímum hjá Garðari Gíslasyni hæstaréttardómara. Það er búið að vera mjög áhugavert, enda tekur hann ætíð skemmtileg dæmi sem tengjast því sem hann ræðir um. Lögfræðin gengur bara vel, fór í tvö próf um daginn og fékk 7 og 9 og var hæstur í bekknum í öðru prófinu. Sé ekki eftir að hafa valið Háskólan á Akureyri og lögfræðina. Svo er líka svo mikið af gellum í skólanum
Í nokkar vikur hef ég verið að passa hamstur fyrir Dagrúnu vinkonu mína. Þetta er hið ágætasta grey og heitir hann Ölli eins og ég. Ég veit samt ekki hvort ég skila honum aftur til hennar, enda erum við Ölli að tengjast miklum vináttuböndum.
Annars er það helst að frétta að í dag eiga tveir góðir vinir mínir afmæli: Gestur er 23 ára eins og ég og Gunnar Liljendal er 22 ára eins og ég var í fyrradag. Sendi ykkur báðum bestu afmæliskveðjur.
Loks ætla ég að benda ykkur á myndasíðuna mína á www.flickr.com. Er alltaf að mynda eitthvað sniðugt og setja þar inn. En ég er farinn að læra. Good day sir!
Samfylkingin í Norðausturkjördæmi efnir til flokksvals þar sem ákveðið verður hvernig skipast í efstu sæti listans hér í kjördæminu, fyrir Alþingiskosningarnar í vor. Pabbi minn, Örlygur Hnefill Jónsson, er einn af frambjóðendunum og undanfarna daga hef ég verið á fullu að vinna með honum í kosningabaráttunni. Pabbi hefur verið varaþingmaður síðan 1999 og hefur í nokkur skipti farið inn á þing. Hann hefur þar komið ýmsum málum í gegn og hefur vakið athygli hversu öflugur hann hefur verið. Var hann til dæmis eini stjórnarandstöðuþingmaðurinn sem kom máli í gegn á síðasta þingi, og þó var hann bara varaþingmaður. Hann á því fullt erindi á þing og ég ætla að leggja mikið á mig til að hjálpa honum í baráttunni næstu daga. Því leita ég líka til ykkar vina minna. Þeir sem hafa áhuga á að hjálpa til mega endilega hafa samband við mig, það er þörf á öllum stuðningi.
Ég hef ástæðu til að ætla að það sé skrímsli undir rúminu mínu. Það heyrðist eitthvað skrítið hljóð þaðan áðana sem gerði mig mjög skelkaðan. Núna er klukkan 3 að nóttu og ég get örugglega ekki sofnað fyrr en ég mana mig upp í að kíkja undir rúmið. Sit bara hérna í rúminu með fartölvuna og skelfingu lostinn og skelf af hræðslu.