Eittþúsund andlit
27. september 2006 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÍ gær fékk ég hugmynd sem ég er búinn að vera að melta í dag og hef nú ákveðið að framkvæma. Ég ætla að taka myndir af 1000 mönnum, konum, strákum, stelpum, systrum, bræðrum, dætrum, sonum, mæðrum, feðrum, öfum, ömmum, samstarfsmönnum, vinum, ókunnugum, þjóðþektum og nýfæddum einstaklingum og gefa út í formi ljósmyndabókar. Ég áætla mér fjögur ár í þetta verkefni, sem þýðir að þið megið búast við bókinni einhvern tíman árið 2010.
Ef þú hefur áhuga á að vera á mynd mátt þú endilega setja komment á þetta blogg eða hringja í mig í síma 862-1818 og ég kem og mynda þig.


Þeir sem vilja tryggja sér fjósadraug verða að vera snarir í snúningum, því nú eru einungis sárafáir eftir.
Ég brá mér ásamt fríðu föruneyti austur á land á föstudaginn til að skoða framkvæmdirnar við Kárahnjúka. Á leiðinni keyrðum við fram hjá Hnefilsdal og ég bara varð að setja þessa mynd inn. Það eru ekki allir sem eiga dal sér til heiðurs. Svo eru líka til Örlygsstaðir. Ég set mynd af mér við Örlygsstaðaskiltið fljótlega þegar ég er búinn að fara og mynda mig við það líka.
