Akstursþroski og umferðardráp
17. ágúst 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Í gærkvöldi varð 17 ára piltur tveimur mönnum að bana í umferðinni. Mað hraðakstri sínum drap hann ökumann sendiferðabíls sem hann mætti og farþega hans. Ökumaðurinn var innan við fertugt og farþeginn var 22 ára. Ég held að nú ætti að taka bílprófsaldurinn til alvarlegrar skoðunar.
Ég tel að réttast væri að við bílprófi færi fram þroskamat þar sem athugað er hvort viðkomandi hefur nægan þroska til að axla þá ábyrgð sem fylgir því að aka bifreið. Mér finnst allt of oft gleymast að þetta er ekki bara spurning um hina ungu ökumenn heldur snertir þetta alla í umferðinni. Allt of margir hafa misst einhvern sem þeim er kærkominn, til þess eins að sautján ára piltur geti sýnt hvað hann kemst hratt með nýpressar ökuskírteini í vasanum.
Tengdar fréttir:
„Hraðakstur var ástæðan fyrir banaslysinu á Garðskagavegi í gærkvöld. Lögreglan í Keflavík segir að vitni hafi staðfest að hraðakstur sautján ára ökumanns á fólksbíl hafi valdið árekstrinum við sendiferðabíl um klukkan sjö í gær. Lést ökumaður sendiferðabílsins, maður á fertugsaldri, á staðnum en tuttugu og tveggja ára farþegi hans og sautján ára ökumaður fólksbílsins voru fluttir alvarlega slasaðir á Landspítala – háskólasjúkrahús í Reykjavík og lést farþeginn skömmu eftir komuna á slysadeild, að sögn læknis. Sautján ára ökumaðurinn var fluttur á gjörgæsludeild en er ekki í lífshættu.“
Mbl.is 17. ágúst 2006
„Sautján ára piltur mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Stekkjarbakka um ellefuleytið á sunnudagskvöld. Leyfilegur hámarkshraði á þessum stað er sjötíu kílómetrar á klukkustund. Ökumaður framvísaði ökuskírteini sínu, sem var ellefu daga gamalt.“
Fréttablaðið 8. ágúst 2006
„Ungur ökumaður, 17 ára gamall var stöðvaður eftir að ökutæki hans var mælt á 149 km hraða þar sem hann ók eftir Suðurlandsvegi til vesturs rétt austan við Hvolsvöll en hann var að koma af dansleik í félagsheimilinu Gunnarshólma í Landeyjum með fullan bíl af farþegum í nótt.“
Morgunblaðið 29. apríl 2006
„Lögreglan á Akranesi stöðvaði ungan ökumann fyrir of hraðan akstur á Kjalarnesi fyrr í dag. Sá reyndist hafa ekið bifreið sinni á 170 kílómetra hraða þar sem 90 km er hámarkshraði.“
Morgunblaðið 18. febrúar 2006



Undanfarna mánuði hef ég orðið fyrir mjög auknu áreiti betlara af ýmsum stærðum og gerðum. Nú er svo komið að ég svara upp undir 10 símtölum á viku þar sem ég er beðinn að styrkja ýmis málefni sem eru hvert öðru brýnna. Ég er alveg ágætis maður en allt á sín takmörk.