Ég held að það sé kominn tími á eitt blogg, sérstaklega þar sem ég er veikur heima og hef ekkert betra að gera. Ég er einn af þeim sem verð alveg ótrúlega sjaldan veikur og ég held að það sé af því að mér leiðist það alveg óskaplega mikið. Ég vil vera á fullu að gera eitthvað frekar en að liggja bara í rúminu allan daginn. En maður verður bara að láta sig hafa það í þessi örfáu skipti sem það gerist. Síðan ég bloggaði síðast hefur ýmislegt gerst. Ég skrifaði forsíðufréttina á Fréttablaði um daginn og hún fékk þvílíka athygli. Þá er ég er búinn að taka viðtöl við allskonar frægakalla og konur í sumar og það er gríðartöff. Tók t.d. viðtal við Gísla Martein í gær. Svo er ég bara búinn að vera að vinna alveg á fullu. Er í tveimur störfum á Fréttablaðinu og svo er ég líka stundum á videóleigunni. Reyndar fékk ég mjög skemmtilega heimsókn einmitt þangað um daginn. Það voru þær Sigga Árdal, Sigga G og Sunna. Sigga færði mér loft í flösku úr Þingeyjarsýslu og mun það eiga stóran þátt í því að ég lifi af sumarið, því Reykjavíkurloftið er ekkert í líkingu við loftið fyrir norðan. Mjög gott mál!
En það hefur ekki allt verið dans á rósum. Um daginn gáfust fallegu grænu skórnir mínir endanlega upp. Ég fékk mér reyndar nýja brúna skó sem er hreint út sagt ekki svo slæmir. Til að vera í stíl þá keypti ég mér líka brúnan bol sem fer vel við skóna.
Um daginn fóru ég Atli og Gunni líka í leynileiðangur út í Gróttu. Kríurnar eru vinir mínir og ég elska máfana. Og talandi um mig og Atla, þá erum við tveir ásamt fleirum alltaf í körfu. Og það gerast líka alltaf einhver ævintýri. Á mánudaginn töpuðum við fyrir guttum sem voru um það bil helmingi minni en við og þó vorum við með risann Gest í okkar liði. Og í fyrradag töpuðum við fyrir öðrum guttum sem voru þó talsvert stærri svo skömmin var ekki eins mikil. Greinilegt að við verðum að herða okkur töluvert.
Ég verð að minnast á þætti sem Vignir á Grensásvideó benti mér á um daginn og heita Arrested Development. Þeir eru alveg hreint frábærir. Í þeim er einn ábyrgur karakter sem þarf að sjá um fjölskyldu sína sem er algjört hyski. Bróðir hans er töframaður, mamman er gjörspillt, sonur hans er skotinn í frænku sinni, systir hans heldur að hún sé umhverfissinni en það gæti ekki verið fjarri lagi og maðurinn hennar heldur að hann sé leikari. Já og ekki má gleyma að fjölskyldufaðirinn er í fangelsi. Ég mæli með því að þið kíkið á þetta.
Og svo var ég að klára að horfa á Kiss kiss bang bang og hún var mjög fín. En ég ætla að hætta núna og lesa Bróður minn ljónshjarta. Yfir og út!
Lesa meira »
(Engin ummæli)