Þegar þetta sumar verður liðið, mun gærkvöldið án nokurs vafa vera á topp 3 yfir sérkennilegustu kvöld sumarsins.
Ég var að vinna til 12 og eftir það héldu ég, Atli, Gunni og Smári niður í Laugardal í körfu. Þetta byrjaði nú bara allt frekar venjulega þangað til buxurnar rifnuðu utan af Gunnari og eftir það varð ekkert samt. Til að sýna honum andlegan stuðning þá ákváðum við Atli að fara úr buxunum okkar líka. Ekki þótti okkur það samt alveg nógu mikill stuðningu svo úr varð að við fórum úr bolunum líka. Eftir stóðum við á brókunum á vellinum fyrir utan félagsheimili Þróttar. Eins og svo oft þegar við erum þarna að spila þá var samkoma í gangi hjá Þrótti og vöktu þessi brókarklæddu körfuboltamenn mikla athygli viðstaddra. Það varð því úr að nokkrir Þróttarar stofnuðu lið og mættu út til að keppa við okkur. Þeir voru allir jakkafataklæddir en við á brókunum. Þetta var náttúrulega algjör snilld og við spiluðum ótrúlega lengi við þá. Þegar leiknum lauk loks vorum við orðnir blóðugir en þeir allir í rifnum, blautum og blóðugum jakkafötum. Sem betur fer voru þeir frekar ölvaðir og voru því ekkert að láta það trufla sig.
Eftir þennan frábæra leik sem Þróttur vann reyndar, fórum við aftur í fötin og fórum heim til Smára. Þar var boðið upp á rauðan chilli pipar í massavís. Ég verð að mæla með þessu við alla þá sem finnst gaman að brenna að innan, því þeir sem hafa smakkað vita að chilli pipar er gríðarlega sterkur. Ég át tvo heila og það var bara eins og maður væri með litla djöfla inni í sér. Gríðarleg karlmennska og fábært kvöld í alla staði
Núna er klukkan að verða 6 og ég er varla kominn á fætur ennþá, enda er maður ennþá að jafna sig eftir gærkvöldið. Planið er að elda kvöldverð, gera teiknimyndir og svo bara aftur niður í Laugardal með strákunum. Í fötunum samt í kvöld.
Góðar stundir.
Lesa meira »
(Engin ummæli)