Kosningar og hvítur kollur
28. maí 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Á fimmtudaginn útskrifaðist ég úr framhaldsskóla og setti upp hinn eftirsótta hvíta koll. Sama dag gaf ég út skólablaðið Járnsíðu og það var því mikill hasar í kringum útskriftina.
Útskriftardagurinn byrjaði á því að ég fór með mömmu í morgunmat sem kennaranir halda árlega fyrir útskriftarnema og eins árs stúdenta. Þau voru búin að græja alveg hreint fyrirtaks morgunverðarhlaðborð fyrir okkur. Ég, Kolli og Ingólfur vorum hins vegar í kappi við tímann og fórum því þegar fjörið stóð sem hæst. Okkar var nefnilega beðið í prentsmiðjunni Örk á Húsavík þar sem Járnsíðan var í prentun. Þegar þangað var komið fórum við á fullt í að raða saman blöðum svo hraðar gengi að hefta og skera blaðið. Þegar klukkan var farin að ganga eitt brunuðum við með 400 fyrstu eintökin sem voru tilbúin í Laugar. Þar klæddi ég mig í sparifötin meðan ég var að gera teiknimyndasögur fréttablaðsins með annari hendi. Allt gekk þó og við vorum allir mættir vel fyrir 2 í útskriftina okkar. Fólk hafði miklar áhyggjur af því að við myndum mæta of seint í hana, þar sem við höfðum komið rúmum klukkutíma of seint á æfinguna kvöldið áður. Ég útskrifaðist með 153 einingar af félagsfræðibraut og tók við skírteininu úr hendi móður minnar. Eftir útskriftina tók Róbert, blaðamaður á Skarpi mig tali.
Á föstudaginn vaknaði ég snemma um morguninn og hélt til Húsavíkur. Þar byrjaði ég á að heimsækja gamla skólann minn og afhenda seinustu viðurkenningarnar fyrir Tónkvíslina. Að því loknu spígsporaði ég montinn um bæinn með nýja hvíta kollinn minn. Eftir hádegi fór ég svo aftur heim að Laugum og hitti meðal annars þær Sigríði Árdal og Dagrúnu Birnu sem voru mættar til Lauga í myndatöku. Ég notaði tækifærið og afhenti Siggu sérstakt sveita-unit sem ég fann í búð um daginn og vissi að myndi nýtast henni vel í stórborgarlífinu á Akureyri næsta vetur. Hún gaf mér poka af ístei. Eftir þetta fór ég og þýddi teiknimyndir og svo brunuðum við systkinin, ég og Emilía af stað til Reykjavíkur.
Í dag fór ég svo í vinnuna uppúr hádegi og er búinn að vera hér í allan dag á kosningavakt Fréttablaðsins. Mikill hasar eins og við var að búast. Takið eftir að ég náði að koma frétt um úrslit í Þingeyjarsveit á síðu 2 í blaðinu á morgun (eða í dag, eftir því hvernig á það er litið, klukkan er jú að nálgast 4).
En nú held ég að það eina rétta í stöðunni sé að drífa sig heim í háttinn, enda er svefninn góður eins og mér var bent áðan
Hefur þú prófað að dýfa ostabrauði í heitt súkkulaði? Ef ekki þá er þetta akkúrat rétti tíminn til að prófa eitthvað nýtt. Enda er þetta með því besta sem maður fær.
Ég held að nú sé kominn tími á eitt gott blogg, enda ekki lítið búið að gerast síðustu daga. Á föstudaginn átti sér stað stórmerkur atburður; síðasti dagur minn í framhaldsskóla. Ég fór nánast með tárin í augunum út úr síðustu kennslustundinni, enda er þetta búinn að vera frábær tími. Ég vil þakka öllu samferðafólki mínu fyrir samfylgdina. Þá vil ég þakka öllum kennurunum sem höfðu ótakmarkaða þolinmæði fyrir áhuga mínum á öðru en skólabókunum. Loks vil ég þakka foreldrum mínum fyrir að gera sitt besta til að gera mann úr mér.
Eins og flestum lesendum mínum er eflaust kunnugt um, þá bý ég á Laugum í Reykjadal. Fyrir þá sem ekki vita, þá eru Laugar í 60 km. fjarlægð frá 