Nesti og nýir skór
24. apríl 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Fundur er settur í heilabúi Örlygs Hnefils hins yngri. Mættir eru tíu fingur og tíu tær. Ritari er kjörinn Örlygur Hnefill.
Mál á dagsrká:
1. Hvað skal gera næsta vetur?
2. Skór
3. Glæstur sigur
4. Önnur mál
1. Eins og margir hafa tekið eftir þá lagði ég könnun fyrir lesendur um hvað ég ætti að gera næsta vetur. Hún er nú búin að standa vel á annan mánuð og tímabært að kunngera niðurstöðurnar. Mikill meirihluti, eða 67% aðspurðra vilja að ég fari til Akureyrar en 33% vilja að ég dvelji sunnan heiða næsta vetur. Engu að síður er ég ekki enn fyllilega búinn að gera upp hug minn. Það eru margir þættir sem þarf að kanna áður en endanleg niðurstaða verður ljós. Gríðarlega hátt leiguverð í Reykjavík dregur töluvert úr áhuga mínum á að flytja aftur í borg óttans en á hinn boginn þá hef ég góða og vel launaða vinnu þar sem ég vill alls ekki sleppa. Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum og má búast við að ég fari undir feld áður en langt um líður, eins og Þorgeir Ljósvetningagoði gerði forðum daga.
2. Annars er það helst af mér að frétta að vinstri skórinn minn hefur gefið sig og þarf ég nú að kaupa mér nýtt par. Þeir sem þekkja mig vita að skórnir mínir eru grænir og hljóta því, líkt og ég, að sjá að ástæðan fyrir því að skórinn gaf sig er sú að hann var Vinstri-Grænn.
3. Áðan keppti ég svo í asna við Önnu Dís, formann ÍFL og sigraði hana með yfirburðum, eða nánar til tekið með einu stigi. Ég óska mér til hamingju með það og votta henni um leið mikla samúð því ég get ímyndað mér hversu mikil niðurlæging það hlýtur að vera fyrir formann Íþróttafélags í íþróttaskóla að tapa fyrir grínista eins og mér.
Fleira er ekki fært til bókar. Fundi er slitið.
