Bloggleti
26. mars 2006 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÞar sem ég er of latur að blogga hefur ónefndur aðili tekið að sér að blogga fyrir mig og hér kemur það:
Góða kvöldið. Jæja það er orðið opinbert. Örlygur er of latur til að blogga og hefur ráðið mannskap í það mál, svo bloggþyrstir lesendur hans þurfi ekki að bíða of lengi eftir næsta bloggi.
En það á víst að fjalla um 80´s myndatöku og lambahrygg í þessu bloggi.
Örlygur var að græja 80´s myndatöku kvöldið 26. mars 2006 ( þetta blogg á að vera 1000-1500 orð þannig að ég lengi þetta eins og ég get). Ég veit reyndar ekkert meira um þessa myndatöku en þetta mun allt koma í ljós þegar skólablaðið á Laugum, Járnsíða, kemur út!
Hann ÖllZ fékk alveg dýrindiskvöldverð núna í kvöld (26. mars 2006) og var það svona lambahryggur. Þetta hefur vafalaust verið eitt af hvítu lömbunum sem voru jarmandi uppí fjalli núna í haust og vissu ekkert hvað var í gangi þegar þau voru leidd á sláturshúsið á Húsvík !!
En í rauninni þá veit ég ekkert um þessa myndatöku og þennan lambahrygg hans þannig að ég ætla að segja hvað sé framundan hjá honum næstu daga. Á morgun ætlar hann að vakna voðalega snemma eða klukkan 06:30 og tannbursta sig og fá sér eitt epli að borða. Svo ætlar hann úta að hlaupa og hann ætlar að hlaupa 10 km. Næst ætlar hann að fara inn og fá sér eina skál af cheroosi svo ætlar hann í skólann og læra og læra svo hann verði gáfaður. Svo ætlar hann að halda áfram að nördast eitthvað fyrir Nfl.. og svo ætlar hann að fara að sofa klukkan 23:01.
Á Þriðjudag gerist allt það sama.. nema hann ætlar ekki að nördast eitthvað fyrir Nfl, hann ætlar að vesenast í einhverri spurninga keppni fyrir félagsmiðstöð þingeyjarsveitar eða eitthvað álíka skemmtileg og fræðandi. Og afhenda falleg viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í Tónkvísl og líka fyrir góða íslensku mál kunnáttu eða hvað sem það var. Veit ekki, útaf ég er ekki í Laugaskóla
En kæru lesendur ég þakka áheyrn ykkar (eða álestur ? eða eitthvað) og nú skulumvið öll biðja um að hann Örlygur aka. ÖllZ, verði duglegur að blogga á næstunni.
Takk fyrir og góða nótt. (nafn ritara verður ekki gefið upp að svo stöddu).

