Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Af strákapörum Örlygs – fyrsti hluti

12. febrúar 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Góðir hálsar. Ég held að það sé kominn tími á eitt gott blogg hérna, enda er DV málið löngu komið af dagskrá, búið að skipta um ritstjóra og sáralítið breytt. Síðan síðast er ég búinn að halda að mestu til á Laugum. Ég, Jóhann Gunnar og Ingólfur erum búnir að sinna ýmsum verkefnum upp á síðkastið, tókum að okkur að gera kynningarmynd fyrir Laugaskóla og höfum svo verið að ferðast milli grunnskóla til að veiða krakka í skólann. Það er líka eina vitið, enda frábær skóli.

Í gær var svo grunnskólamótið á Laugum með tilheyrandi skólakynningum. Við erum bara eins og gangandi auglýsingaskilti. Það var mjög góð mæting á mótið, eitthvað um 200 manns, og mikið líf á staðnum. Ísafold var með 6 tíma útsendingu, en það er hægara sagt en gert að finna hressandi efni í sex tíma. Það var því á köflum frekar þunnur þrettándi hjá okkur. Engu að síður kom margt á skjáinn. Ég held ég hafi tekið viðtöl við eitthvað um 20 manns í gær, auk þess sem nokkrir komu í settið. Ég var aðallega í því að taka viðtöl í íþróttahúsinu og hafði Kolbjörn og Gunnar Bó með mér þar. Í stjórnstöðinni voru svo Narfi og Jói sem sáu um að bulla út í eitt og Ingólfur og Hlynur stjórnuðu öllum helstu tökkum.

Í kvöld var svo þorrablót Reykdælinga. Það var frábær skemmtun og þá sérstaklega skemmtiatriðin sjálf. Ég var ættleiddur af Pálmholtsfjölskyldunni þar sem mín familía var ekki á svæðinu.

Svo er hér að lokum smá pæling. Ég er að útskrifast í vor og veit ekki alveg hvað ég á að gera. Eins og staðan er í dag þá er tvennt í myndinni: Annarsvegar að flytja til Reykjavíkur og vinna áfram hjá Fréttablaðinu og fara í Sagnfræði í HÍ eða að flytja til Akureyrar og læra Fjölmiðlafræði í Háskólanum á Akureyri. Ég ætla að athuga hvor kosturinn ykkur þykir betri og því er komin hér glæný könnun.

Jæja, ég er farinn að dansa. Góðar stundir!


Ég að taka viðtal við Sigríði Árdal, sigurvegara og eina þátttakanda í SMS leik Ísafoldar.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »