Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Daglegur Viðbjóður

12. janúar 2006 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ein pæling varðandi málefni DV. Við vitum ekki hvort sá maður sem hefur verið í umræðu síðustu daga var sekur eða saklaus og um það snýst þetta mál í mínum huga ekki. Málið snýst um það að í landinu er ákveðið réttarkerfi og það á að sjá um að dæma í þessu máli en ekki DV. Ef einhver ásakar Jónas Kristjánsson ristjóra um eitthvað misjafnt, mun hann veita sjálfum sér sömu meðferð og öðrum sem þeir hafa slátrað á síðum blaðsins, eftir heimildum sem eru svo oft byggðar á engu? Það sjá allir að heimildir DV eru nú ekki þær áreiðanlegustu og raunar ótrúlegt að fjölmiðill skuli t.d. nýta sér nafnlaus ummæli á spjallsíðum sem heimildir. Ef ég skrifa eitthvað á netið um Jónas Kristjánsson, má ég þá búast við því á síðum blaðsins? Hann sagði allavega að þeir gerðu ekki mannamun þegar hann var spurður að því í Kastljósinu.

Kannski er lausnin bara sú að leggja niður réttarkerfið og láta DV menn alfarið sjá um dóma og mannorðsmorð. Ég er ekki alfarið á móti DV. Oft koma þeir með góð mál og þarfar ábendingar. Hinsvegar ganga þeir allt of oft út fyrir öll eðlileg mörk.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »