Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Jólin 2005

25. desember 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Jæja, þá er jólafríið mitt að enda. Í fyrramálið þarf ég að keyra aftur til Reykjavíkur til að byrja að vinna. En hvað um það, ég náð tvem frábærum dögum fyrir norðan. Á þorláksmessukvöld keyrðum við Emilía norður eftir vinnu. Með í för var stúlka frá Reykjavík sem var að fara í Kelduhverfi til að vera hjá afa sínum og ömmu um jólin. Hún heitir Saadia og var hin besta skemmtun að hafa hana með. Á leiðinni komst ég að því að við áttum ýmislegt sameiginlegt og grunar mig að hún sé jafnvel skrítnari en ég ;) Verst að ég hafði ekki vit á að raka mig og vera snyrtilegur áður en við fórum af stað. Margt var gert til að stytta stundir við aksturinn, m.a. vorum við virk í að senda hvert öðru kveðjur á Útvarpi Kántríbæ. Við vorum komin norður um klukkan 2 um nóttina og þá reyndi Saadia að múta mér með 2000 krónum fyrir aksturinn en ég harðneitaði og úr varð hið mesta stríð. Þegar ég kom heim voru allir ennþá vakandi og fórum við Gunnar Hnefill að horfa á vídjó. Þegar ég vaknaði á aðfangadag lá margt fyrir. Að venju fórum við niður á Húsavík og heimsóttum forfeður okkar í kirkjugarðinum. Einnig heimsóttum við Klemens afa Garps Hnefils og ég heimsótti Gest í leiðinni. Um kvöldið var hefðbundið jólastand, frábær matur, pakkar og möndlubúðingur. Þetta voru sannkölluð bókajól hjá mér því ég fékk 6 bækur. Í dag komu svo góðir gestir, Joe Gunn frændi minn og allt hans fólk. Jæja, ég ætla að fara að segja þetta gott. Ætli það sé ekki best að enda þetta á að óska öllum gleðilegra jóla. Hó hó hó. Góðar stundir.

Góð sala á plötunni minni :)

21. desember 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Að sjálfsögðu er þetta fölsuð frétt, enda ekki miklar líkur á því að ég verði poppstjarna. Ég vona að enginn móðgist.

Hið algjörlega tilgangslausa persónuleikapróf!

17. desember 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

The Completely Pointless Personality Quiz

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »