Ég er stöðugt á ferð og flugi þessa dagana. Síðustu helgi dvaldi ég í Reykjavík við vinnu og í gærkvöldi gerði ég mér ferð til Akureyrar. Verður hér í nokkrum línum sagt frá hvoru tveggja.
Á föstudaginn tók ég flugið suður og var mættur í vinnuna seinnipart dags. Það er alltaf jafn gaman að mæta því mér er alltaf fagnað eins og þjóðhetju þegar ég mæti. Eitthvað sprell í gangi þar. Eftir vinnu á föstudaginn hitti ég Gest og við fórum í litla afmælisveislu til Ástríðar. Hún hafði bakað kökur sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Þær brögðuðust mjög vel en útlitið var ólíkt öllu öðru sem ég hef áður séð. Þetta málverk eftir Salvador Dali lýsir kannski best þessari upplifun. Eða bláa súpan sem Bridget Jones gerði á afmælinu sínu. Allt gott um það.
Ég var á laugardagsvakt á Fréttablaðinu með Emilíu systur minni og það þykir mér alltaf mjög gaman. Það er þægileg tilfinning að vita af henni í húsinu. Ágætis vakt sem endaði reyndar í hörmungum þar sem tölva hrundi, forsíður hurfu og Fréttablaðið á sunnudegi var einungis hársbreidd frá því að vera prentað í 100.000 eintökum með rauðum föstudags-borða efst á forsíðunni. Rétt slapp þó.
Á sunnudaginn fór ég í fyrri bókaleiðangur vikunnar. Ég heimsótti Iðu og Pennan. Afrakstur leiðangurins voru tvær bækur: Emily the strange og An incomplete education. Ég verslaði mér líka nokkrar kvikmyndir, m.a. hinar frábæru myndir Groundhog Day og Hitchhiker’s guide to the Galaxy.
Seinnipart sunnudags var tímabært að halda heim en vegna slæms veðurs fyrr um daginn höfðu verið töluverðar tafir á flugi og mátti ég því bíða dágóða stund á flugvellinum. Við hlið mér í biðsalnum sat landsþekktur maður og það var gaman að sjá hvernig aðrir ferðalangar voru stöðugt að rannsaka hann, án þess að láta mikið fara fyrir því.
Í gærkvöldi fór ég svo í síðari bókaleiðangur vikunnar með þeim Andreu og Alexöndru. Við fórum í Pennan á Akureyri en þrátt fyrir mikla leit að spennandi lesefni fann ég ekki nema eina bók sem vakti verulegan áhuga minn: Kennslubók í fjölmiðlafræði. Ég hef reyndar lokið áfanga í fjölmiðlafræði með annari bók en þessi verður eflaust ágætis lesning. Eftir bókakaupin fórum við í Bryju, enda hafði Alexandra aldrei prófað Bryjuís. Eftir Ísinn var okkur orðið ansi kalt og fórum því á Bláu könnuna og hituðum okkur upp með bolla af heitu kakói. Eitthvað voru gestir kaffihússins farnir að gefa okkur auga, enda vorum við ekki beit siðsamleg þar.
Að lokum er gaman að segja frá því að elsta lifandi dýr heims, skjaldbakan Harriet fagnar 175 ára afmæli sínu í dag. Hún var upphaflega í eigu Charles Darwin. Góðar stundir.
Lesa meira »
(Engin ummæli)