Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Draumurinn

26. október 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Hæ.. það var sko ein stelpa sem dreymdi mig já umhumm

Hversu vel þekkir þú mig?

15. október 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Hæ, hér er svona próf þar sem þú getur séð hversu vel þú þekkir mig.
http://www03.quizyourfriends.com/yourquiz_IM.php?quizname=051010150749-696987&email=&c=0&a=01

Allt að gerast

14. október 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Jæja, það er búið að vera mikið að gerast síðustu dagana. Á mánudaginn fórum ég, Ingó, Kristín Lea, Jói og Sædís til Húsavíkur og hittum stjórn nemendafélagsins þar. Var ákveðið að vera í góðu samstarfi í vetur og það byrjar með miklum leikum sem verða haldnir á Laugum 4. nóvember þar sem FL og FSH keppa í ýmsum greinum. Eftir fundinn fórum við í Essó og hresstum okkur með djúpsteiktri pylsu og kók í bauk. Gaman að segja frá því að Kristín Lea gaf mér ekki bara síðasta rólóið sitt heldur tvö síðustu ;) Nú svo er búið að vera mikið að gera hér á Laugum líka. Við erum á fullu að undirbúa 80 ára afmæli skólans sem verður haldið 30. október. Vaskir piltar í byggingarfélaginu Ófeigi hafa verið á fullu að smíða og endurbæta í Þróttó. Ég hef verið í kvennlegri störfum og sést annað slagið með tuskuna á lofti. Einnig hef ég verið að gera boðskort fyrir afmælið og er nú að klippa stutta mynd um sögu Laugaskóla. Ég verð því lítið fyrir sunnan næstu helgar, eða þangað til þessi hasar allur er búinn. Góðar stundir.

Vegna fjölda áskoranna

6. október 2005 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Jæja góðir hálsar,
vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að lífga við þessa frábæru bloggsíðu. Það er ansi margt markvert sem hefur gerst hjá mér síðan ég bloggaði síðast. Ég bjó í Reykjavík í sumar og var að vinna þar á Fréttablaðinu sem var mjög hressandi. Síðan kom ég aftur á Lauga í haust og það er búið að vera mjög hressandi líka. Hér er mikið af busum og ég er búinn að vera duglegur að skoða þá ;) nei ég segi svona. Nú svo er ég að fara suður aftur á morgun að vinna um helgina eins og ég geri ansi oft núna þessa dagana. Er orðinn dáltð þreyttur á að vera alltaf að fljúga.
yfir og út

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »