Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Dagdraumar við færibandið

11. september 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Vaknaði sofandi í morgun, keyrði sofandi í vinnuna og var sofandi þar í dágóða stund. Seinasti dagurinn í vinnunni og ég gat ekkert sofnað í nótt af tilhuxuninni. Uppúr klukkan tíu fór að draga til tíðinda. Þó kom hópur þýskra menntaskólanema í heimsókn til að skoða Kísiliðjuna. Ég fór inn á snyrtingu og skolaði stýrurnar úr augunum á mér og setti smá gel í hárið til að líta vel út. Síðan fór ég fram og hélt áfram að vinna. Ein stelpan í hópnum var hávaxin og ljóshærð, mjög sæt stelpa. Ég vissi vel að ég ætti aldrei eftir að hitta hana aftur svo ég ákvað að slá til. Ég rölti að henni og sagði heilsaði með minni menntaskólaþýsku. Hún svaraði einhverju sem ég skildi ekki alveg, en við vissum bæði hvað við vildum. Ég sagði henni að ég vissi um afvikna ræstingakompu sem við gætum farið í og hún elti mig. Ég mætti gremjulegu augnaráði drengjanna í hópnum þegar þeir sáu okkur fara. Ég læsti hurðinni á eftir okkur og slökkti ljósið í loftinu. Kompan var frekar lítil en það kom ekki að sök. Andrúmsloftið var þrungið spennu og þegar ég átti sýst von á…

..þá hringdi síminn og ég var beðinn að koma inn á ransóknarstofu. Hópurinn var fyrir löngu farinn og ég var þarna einn, við færibandið. Já, dagdraumar eru yndislegir.

Eftir vinnu fór ég heim og tók saman dótið mitt. Pakkaði öllu í bílinn og keyrði til Akureyrar. Ég fór í gær og sótti lykilinn að herberginu sem ég er að legja í vetur og ákvað því að flytja í dag. Ég kom öllu mínu snyrtilega fyrir, bjó meira að segja um rúmið og fór síðan í bæinn. Kíkti í banka og tók út pening og kom síðan við hjá Möggu uppi í Hrísalundi. Síðan fór ég í Glerártorg og keypti mér forstjórastól. Núna er ég fær í flestan sjó. Eftir að ég var búinn að setja hann saman fékk ég fyrstu heimsóknina á nýja staðinn. Það var Helgi Vilberg. Ég sýndi honum nýuja orgelið mitt og svo tókum við lagið. Við skelltum okkur svo í heimsókn til Steina og skoðuðum íbúðina hans. Síðan fórum við aftur heim til mín og átum tvær Dominos pizzur og horfðum á bíómyndina Oceans 11. Síðan kom Magga í heimsókn og tilkynnti mér að þetta væri ekki í síðasta skipti sem hún myndi koma þarna. Þegar við fjögur vorum búin að hanga þarna inni í dágóða stund skelltum við okkur á rúntinn í hálftíma eða svo og síðan aftur heim til mín. Á endanum vorum við Helgi einir eftir og við fórum annan rúnt sem endaði um þrjú að nóttu fyrir framan ljósmyndastofu Páls þar sem við fórum í alskonar leiki með skólaspjaldið.

Síðan hélt ég heim til Lauga og held að það sé kominn tími á að fara að sofa :)

Miðvikudagur, 4. september 2002

4. september 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ástandið versnar, dag frá degi. Núna er klukkna að ganga sex að kvöldi og ég að drattast framúr rúminu. Ég efast um að ég muni fara út úr húsi í dag, hvað þá að ég klæði mig í föt. Maður hefur ekki gott af svona fjögra daga fríi, en ég er sem betur fer að fara í vinnuna á morgun. Jæja, ég skrifa meira áður en ég fer aftur að sofa…

stillimynd…kenningin rættist og ég er enn ekki kominn í föt, og klukkan að verað 11… Jæja, nema hvað að ég skrapp fram til að horfa á sjónvarpið og dagskráin var eitthvað á þessa leið:

20:00 Einhver þáttur (e)
21:00 Annar þáttur (e)
22:00 Fréttir
22:30 Meira endursýnt efni í boði rúv (e)

…svo ég fór að velta fyrir mér hvort þess væri langt að bíða að þeir færu að endursýna gamla fréttatíma. Jæja, ég er allavegana ánægður yfir að vera bara unglingur og sleppa við að borga fyrir þessi ósköp.

Þriðjudagur, 3. september 2002

3. september 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Góða kvöldið… ég tók því frekar rólega í dag, svaf til að ganga fjögur og skreið þá framúr og kíkti á emailinn minn. Það er einhvernvegin þannig að fólk nennir rosalega lítið að senda tölvupóst á sumrin, það vilja bara allir vera úti í góða veðrinu. En hvað með okkur sem erum ekki með gott veður? Sendið mér endilega póst, netfangið er hnefill at muninn punktur is svo ég geti tekið gleði mína á ný..

Jæja, þegar ég kom út úr herbergin var mér tilkynnt að ég væri orðinn allt of seinn, en þá var öll fjölskyldan greinilega á leiðinni til akureyrar. Svo ég hoppaði í fötin og upp í bíl. Pabbi var að fara á fund og ég ákvað að fara með honum. Röltum fyrst gegnum bæinn og þar hitti ég Tinnu Mjöll og systur hennar. Þær voru á leiðinni í bíó. Síðan skrapp ég í stutta heimsókn á Eyrarlandsveginn til Bobbýs og síðan á fundinn.

Fundurinn var um evrópusambandið og hvort ísland ætti að gerast aðili að því og eins spennandi og þetta hljómar þá var þetta mjög góður og upplýsandi fundur. Jæja.. svo keyrðum við bara heim og ég núna er ég bara að fara að sofa..
see ya :)

Mánudagur, 2. september 2002

2. september 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Jæja.. þá er maður búinn að búa sér til eitt stykki heimasíðu. Ég vaknaði í nótt og gat ekki sofnað aftur svo ég ákvað bara að fara að teikna og hér er útkoman komin, svart á hvítu, eða því sem næst. Mamma og pabbi eru búin að vera að banka á hurðina mína í allan dag, spurjandi hvort ég ætli ekki að líta aðeins upp úr tölvunni. En núna er þetta tilbúið svo ég get farið út að leika mér..

..kominn aftur, það er ógeðslegt rok úti svo ég hef alveg ágætis afsökun fyrir því að hanga inni. Fékk símtal alla leið frá Krít áðan, það var Soffía og hún var í svaka stuði. Hún sat á sundlaugarbakka með símann í annari og Tin-tan brúsa í hinni og var að segja mér frá alskyns ævintýrum sem þau væru búin að lenda í. Jæja,.. ég er farinn að sofa. Góða nótt :)

Sunnudagur, 1. september 2002

1. september 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Jæja þá.. nú er kominn tími til að skrifa eitthvað hérna, enda eru liðnir tveir mánuðir frá því ég skrifaði síðast. Að auki er ég í fríi í dag svo það er engin afsökun fyrir því að skrifa ekki núna. Anyway.. þá er margt búið að gerast síðan síðast. Ég er kominn með nýja vinnu, hætti um mitt sumar í Laugafiski og flutti mig um set upp í Mývatnssveit og vinn nú í Kísiliðjunni sem pakkari. Þetta er mjög gott starf, vel launað og skemmtilegt. Þar var ég að vinna með Gesti og ekki er það nú í fyrsta skipti sem við lendum einhverstaðar saman. Hann er hinsvegar floginn á vit ævintýranna, nánar til tekið til Krítar og er þar í útskriftarferð með öllum árganginum mínum.

Í byrjun júlí hélt ég í heljarmikið ferðalag. Með í för voru Pétur, Aui, Fjóla og Magga. Stefnan var tekin á Travistónleika í Reykjavík og úr varð heljarinnar ferðalag sem endaði á ekta sveitaballi í borgarfirði. Já og í Borgarfjörðin fór ég aftur í ágústbyrjun en þá bauð Ásdís í partý. Ekki vafðist það fyrir mér að keyra yfir hálft ísland til að fara í partý og ekki var erfiðara að fá fólk með sér. Á endanum vorum við orðnir fjórir, ég, Gestur, Helgi Vilberg og Palli Kolka.

Síðast en ekki síst ber að nefna að ég er búinn að vera mikið að vinna í verkefni sem ég og nokkrir aðrir strákar höfum tekið að okkur fyrir næsta vetur en er algjört leyndarmál ennþá svo ég segi bara frá því seinna.. Annars er ég ekki búinn að gera mikið í dag nema sofa. Var að koma af næturvakt í morgun og er loksins kominn í frí og mun slappa af næstu fjóra dagana. Kíki kannski hingað á morgun og bæti síðuna eitthvað :) Góða nótt í bili..

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »