Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Laugardagur, 22. júní 2002

23. júní 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég vaknaði ógurlega snemma, eða nánar til tekið klukkan 6:30. Ég átti eftir að borða morgunmat og bruna svo upp á Lauga og í vinnuna. Þó að ég hafi kannski ekki beint gaman af vinnunni þá lætur maður sig nú hafa það að vinna auka vakt, sérstaklega þegar maður hefur ekkert að gera og fær tvöfallt kaup. Það var bara unnið fram að hádegi og þá fór ég heim í Holt og slappaði þar af í dágóða stund.

Um klukkan 4 fór ég svo af stað til Húsavíkur. Þegar þangað var komið fór ég með Ömmu í búð að kaupa í matinn, enda veitir ekki af þegar ég er í heimsókn. Síðan fengum við okkur kvöldmat og svo fór ég út.

Ég kíkti fyrst til Gumma og þar voru hann og Pétur staddir. Ég fékk að skoða myndir úr sólarlandaferðinni sem þeir fóru í ásamt fleirum nú nýlega. Síðan ræddum við verslunarmannahelgina og við erum á því að fara í Eyjar. Það verður eflaust skemmtun mikil. Eftir að hafa hangið inni í nokkra stund ákváðum við að skella okkur á gólfvöllinn. Með snilldartötum og mögnuðum sveiflum tókst okkur að gera 9 holu gólfvöll Húsavíkur að 200 holu gólfvelli. Sem betur fer vorum við bara á æfingarvellinum. Síðan ákváðum við að kíkja á heita lónið þar sem krókódílarnir koma bráðlega en það er þarna skammt undan. Svo fór að lokum að ég demmdi mér út í og líkaði það bara vel.

Síða rúntuðum við um og fórum m.a. í partý hjá Halla Orra. Svo var rúntað fram á rauða nótt og ég sofnaði að lokum í bílnum.

Föstudagur, 21. júní 2002

22. júní 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég vaknaði einn heima eins og undanfarna daga. Það var sól og blíað og ljóst að sumarið er loksins komið svo ég ákvað að rölta bara í vinnuna. Eftir vinnu fór ég niðrá Húsavík í mat til Ömmu Millu. Síðan fór ég bara upp í herbergi og fór að sofa.

Fimtudagur, 20. júní 2002

21. júní 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég vaknaði og fór í vinnuna klukkan átta. Kom heim klukkan fjögur og fór að sofa. Vaknaði aftur um miðnætti og horfði á eina bíómynd og fór svo aftur að sofa. Þetta var ágætis mynd en ég man ekki hvað hún heitir. Ég held að dagarnir séu allir að verða eins.

Miðvikudagur, 19. júní 2002

20. júní 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Vaknaði og fór í vinnuna. Kom heim og hringdi í Pétur vin minn og bauð honum að koma í mat. Fengum okkur Pizzu úr Laugaseli og horfðum á Austin Powers. Svo fórum við á rúntinn og síðan kvaddi hann. Þá varð mér hugsað til Evu Lindar. Það er nefnilega búið að vera að spila auglýsingu í útvarpinu í allan dag um konu sem ætlar að lemja manninn sinn af því að hann borðaði seinasta íspinnan úr frystikistunni og alltaf þegar ég heyrði hana var mér hugsað til Evu :-)

Hún er að vinna í blómagenginu í Eyjum og sagði mér að það væri ekki vit í neinu öðru en að fara á þjóðhátíð. Ég er enn að hugsa máli. Eftir að ég talaði við hana ákvað ég bara að fara að sofa.

Þriðjudagur, 18. júní 2002

19. júní 2002 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Ég vaknaði spenntur í morgun, enda fyrsti dagurinn minn í vinnu. Ég fékk mér cheerios og fór síðan hjólandi yfir í Laugafisk. Þetta er svona vinna þar sem maður talar ekki mikið og kynnist ekki mörgum. Þó náði ég ágætlega saman við strák frá Akureyri sem er að vinna þarna og heitir Hólmgeir. Ég var með honum á bretti allan daginn. Í hádeginu kíkti ég heim en hélt svo áfram. Í dag vorum við að raða flökum á bretti, svaka stuð. Ég er samt með útvarp á hausnum svo þetta er alveg þolanlegt í átta tíma. Svo hefur maður svo góðan tíma til að hugsa.

Eftir vinnu fór ég heim og er búinn að liggja í leti í allt kvöld. Horfði á myndina American sweetharts og er að spá í að fara bara að sofa núna, enda er klukkan að verða eitt og vinna klukkan átta í fyrramálið. Góða nótt.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »