Er framtíð í innanlandsflugi?
17. mars 2001 | Örlygur Hnefill ÖrlygssonÍ dag ganga Reykvíkingar að kjörborðinu til að kjósa um framtíð Reykjavíkurflugvallar, miðstöðvar íslensks innanlandsflugs. Er þar kosið til mjög langrar framtíðar, enda verður ekkert aðhafst fyrr en að 15 árum liðnum. Það er hinsvegar ljóst að úrslit þessara kosninga hefa mikil áhrif, ekki bara á borgarskipulag Reykjavíkur, heldur einnig á framtíð innanlandsflugs. Komið hefur fram að innanlandsflug stendur mjög höllum fæti um þessar mundir og stendur ekki undir kostnaði. Það ætti öllum að vera ljóst, hversu mikilvægt það er fyrir íbúa landsbyggðarinnar að flugsamgöngur haldist. Það hefur sýnt sig að ástandið hefur versnað þegar flugsamgöngur hafa lagst af og má þar t.d. nefna Húsavík og fækkar innlendum áfangastöðum stöðugt.
Það hlýtur að teljast fremur undarlegt að í þessari kosningu skuli rödd landsbyggðarfólks ekki fá að njóta sín. Það er ljóst að flugvöllurinn og framtíðarstaðsetning hans skiptir miklu í þróun byggðamála. Það eru íbúar landsbyggðarinnar sem nota flugvöllin manna mest og því væri eðlilegt að okkur væri gefinn einhver kostur á að hafa áhrif. Flestir hafa fullan skilning á rökum flugvallarandstæðinga, hvað varðar landnýtingu og hljóðmengun. Það er mjög gott byggingarsvæði sem fer til spillis vegna flugvallarins. Hinsvegar hefur staðsetning flugvallarins líka góð áhrif fyrir Reykvíkinga. Það gerir fólki hægar um vik, t.d ef Reykvíkingar þurfa að fara út á land. Öryggisþáttur flugvallarins er einnig gríðarlegur og staðsetning hans í grennd við sjúkrahús er mjög ákjósanleg.
Það er Reykjavík sem höfuðborg Íslands mjög nauðsynlegt að þar sé flugvöllur. Verði innanlandsflug flutt til Keflavíkur mun það líklegast leggjast af. Þá er jafnvel fljótlegra að keyra. Þetta er mikið hitamál og skiptir miklu fyrir framtíð landsbyggðarinnar. Ég skora því á allt atkvæðisfært fólk að nýta sér kosningarétt sinn í dag svo við fáum sem heildstæðasta niðurstöðu.
