Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Fjölbreytni styrkir landsbyggðina

30. september 2000 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Undanfarin ár hafa byggðamál verið mikið í brennidepli. Breyttir atvinnuhættir hafa gert það eftirsóknarverðara að búa á höfuðborgarsvæðinu og nú er svo komið að byggðaflóttinn er orðinn að stóru vandamáli. Mikill kostnaður fylgir því að byggja upp nauðsynlega þjónustu fyrir nýja borgarbúa, þjónustu sem þegar er til staðar á landsbyggðinni.

Ríkisstjórnin hefur rekið slæma og vanhugsaða byggðastefnu sem felst helst í því að taka rótgrónar stofnanir og flytja út á land. Afleiðingarnar eru oftast þær að flestir eða allir starfsmenn stofnananna hætta og mikil reynsla og þekking tapast. Þessi vinnubrögð gagnast hvorki landsbyggðinni né þjóðfélaginu í heild og eru mjög skemmandi fyrir byggðamálefni. Frekar ætti að veita fjármagni til að styðja við og efla þá atvinnustarfsemi sem þegar er á landsbyggðinni.

Um síðustu helgi var atvinnuvegasýningin Sól nýrra daga haldin á Ísafirði. Þar kynntu vestfirsk fyrirtæki starfsemi sína. Fjölbreytnin er mikil. Þarna voru allt frá fiskvinnslufyrirtækjum upp í hátæknifyrirtæki að kynna fjölbreyttar vörur sínar. Sýning sem þessi hefur mikil og jákvæð áhrif. Hún er góð kynning út á við en það sem skiptir einnig miklu máli eru þau jákvæðu áhrif sem hún hefur á vestfirskt samfélag. Fólk fær aukna trú á heimabyggð sinni þegar það sér alla þá möguleika sem fyrir hendi eru. Með því að styðja vel við bakið á þeim fyrirtækjum sem vinna brautryðjendastarf mætti fjölga störfum á landsbyggðinni og auka möguleika fólks.

Kaupmenn í Krists húsum – bresk byggðastefna

23. september 2000 | Örlygur Hnefill Örlygsson

Hugmynd bresku kirkjunnar um að komið verði upp hraðbönkum í kirkjum er það mál sem brennur hvað heitast á bresku þjóðfélagi um þessar mundir. Með því móti hyggjast kirkjunnar menn og konur auka aðsókn fólks að kirkjum sem hefur minnkað mikið á síðustu árum. Auk þess bætir þetta fyrirkomulag úr brýnum skorti á bankaþjónustu í hinum dreifðu byggðum Bretlands. Ekki er þó full sátt um hugmyndina innan kirkjunnar. Andstæðingar tillögunnar hafa bent á Biblíuna, málstað sínum til stuðnings, en þar segir að Kristur hafi rekið víxlarana úr musterunum.

Þarna rekast á byggðarsjónarmið annars vegar og spurningin hvort hinn frjálsi markaður eigi samleið með trúarstofnunum hins vegar. Auknar kröfur eru nú gerðar til kirkjunnar um að taka þátt í daglegu lífi fólks en mörkin eru óljós. Sumir vilja meina að þessar tillögur gangi guðlasti næst en öðrum finnst þetta sjálfsagður hlutur.

Ef bankaþjónusta yrði veitt í kirkjum myndi skapast í hæsta máta óvenjuleg staða en rökin mæla þó frekar með því. Vilji hlýtur að vera fyrir því að hafa sóknir áfram í sem flestum þorpum. Ef bankaþjónusta leggst hins vegar af má búast við því að erfitt verði að halda fólki í smáum byggðarlögum. Almenningur gerir kröfu um ákveðna lágmarksþjónustu. Því er mjög eðlilegt að kirkjan lagi sig að breyttum þörfum samfélagsins.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »