Valmynd »
» Örlygur Hnefill
» Um mig
» Greinar
» Myndir
» Gestabók
 Nýjar myndir »

» fleiri myndir

 

Borgarafundur um vímuvarnir í Gryfjunni

12. apríl 2000 | Örlygur Hnefill Örlygsson
Tómas Ingi Olrich, Björn Jósef Arnviðarson og Sólveig Pétursdóttir

Tómas Ingi Olrich, Björn Jósef Arnviðarson og Sólveig Pétursdóttir

Í gærkvöldi var haldinn almennur borgarafundur um vímuvarnir í Gryfjunni í VMA. Fundurinn var haldinn á vegum MA og VMA og var Hjalti Jón Sveinsson skólameistari VMA fundarstjóri. Fyrst talaði Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra. Hún sagði að bæta þyrfti samstarf þeirra sem vinna að vímuvörnum og skapa unglingum betra umhverfi og að framtíðin væri björt ef við öxlum ábyrð og setjum markið hátt. Tryggvi Gíslasson skólameistari MA sagði að ungt fólk hefði ekki fengið skýr skilaboð og það sé þörf á að skera upp herör gegn sendiboðum dauðans sem eitra fyrir ungmennum. Hann minnti þó á að það væri aðeins lítill hópur ungmenna sem væri í vandræðum og að Ísland hafi aldrei átt hæfileikaríkara fólk en nú.

Steinunn Vala Sigfúsdóttir og Guðný María Jóhannsdóttir formenn Hugins og Þórdunu

Steinunn Vala Sigfúsdóttir og Guðný María Jóhannsdóttir formenn Hugins og Þórdunu

Karen Malmquist, forvarnafulltrúi VMA, sagði frá því hvað felst í starfi forvarnafulltrúa. Fyrir hönd skólafélaganna Hugins og Þórdunu töluðu þær Steinunn Vala Sigfúsdóttir og Guðný María Jóhannsdóttir, fráfarandi formenn. Steina sagði frá því að allar samkomur á vegum MA eða Hugins væru vímuefnalausar. Guðný sagði að á einhvern undarlegan hátt hefði skapast hefð hjá stórum hópum ungmena fyrir drykkju um hverja helgi.

Næst tók til máls Hilda Jana Gísladóttir og sagði frá reynslu sinni af fíkniefnaneyslu. Hún sagði að það væri ekkert lögmál til fyrir því hverjir leiddust út í neyslu. Fólkið sem ber ábyrð á forvörnum þyrfti að hætta að benda hvert á annað og líta sér nær. Hún kom mjög hreint fram og sýndi ótrúlega mikið hugrekki í máli sínu.

Daníel Snorrason frá lögreglunni á Akureyri sagði frá mikilli fjölgun fíkniefnamála, en þeim fjölgaði um helming frá 1998 til 1999. Kjartan Ólafsson frá Rannsókn og greiningu kynnti rannsóknir sínar á vímuefnaneyslu unglinga. Ólafur Thoroddsen, skólastjóri Síðuskóla sagði frá þeirri stefnu sem hans skóli hefur tekið upp í sambandi við forvarnir. Þar eru þeir sem mæta undir áhrifum vímuefna á samkomur skólans útilokaðir frá frekari þátttöku í félagsstarfi í skólanum. Hefur þessi stefna dregið mjög úr vímuefnanotkun nemenda. Hann sagði þetta þó mismunandi eftir árgöngum.

Kolbún Ævarsdóttir frá sjálfshjálparhópi foreldra talaði um þátt foreldra í vímuvörnum. Fyrir hönd íþróttafélaganna talaði Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA. Ræddi hún um mikilvægi íþrótta í forvörnum og sagði meðal annars að unglingar sem eru virkir í íþróttum væru síður líklegir til að neyta vímuefna. María Jónsdóttir, forstöðukona Kompanísins ræddi um mikilvægi góðra félagsmiðstöðva. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, sagði að vegið væri að gildum Akureyringa og orð eins og klám, dóp og unglingadrykkja kæmu æ oftar fyrir í máli bæjarbúa. Að lokum hvatti Kristín Sigfúsdóttir foreldra til aðgerða. Virkar forvarnir á heimilinu gætu sparað ríkinu marga milljarða.

Það var almennt mál fundarmanna að aukin samvinna þeirra sem vinna að forvörnum væri nauðsynleg til að ná bættum árangri. Fundurinn samþykkti að lokum áskorun til yfirvalda, um bættar vímuefnavarnir.

 
 Um mig »
Ég heiti Örlygur Hnefill Örlygsson og er 25 ára gamall piltur. Ég er stúdent frá Laugaskóla og nemi á þriðja ári í lögfræði við Háskólann á Akureyri. Til að borga matinn minn skrifa ég og mynda fyrir Fréttablaðið. Ég hef gaman af því að leika og læra og ég tala stundum þegar ég sef.

Husavik accommodation
 Hafa samband »
Sími
+354 848 7600
Netfang
hnefill[a]hnefill.is
MSN
msn[a]hnefill.net
Myspace
myspace.com/hnefill
Flickr
flickr.com/photos/hnefill
 Myndaleit »
Leita í myndasafni mínu
á www.flickr.com
 Gagnasafn »